Skinfaxi - 01.03.2021, Síða 19
S K I N FA X I 19
Yngstur og elstur á þinginu
Skemmtilegt er frá því að segja yngsti og elsti þingfulltrúarnir komu
frá sama sambandssvæðinu. Það voru þeir Sólmundur Sigurðarsson
og Markús Ívarsson frá Vorsabæjarhóli. Þeir eru frá sambandssvæði
Héraðssambandsins Skarphéðins (HSK). Sólmundur er fæddur árið
2000 og því 21 árs að aldri en Markús árið 1947 og er 74 ára. Þeir
voru jafnframt herbergisfélagar meðan á þinginu stóð.
Þrjú félög hlutu Hvatningarverðlaun
Forsvarsfólk þriggja ungmennafélaga tók við Hvatningarverðlaunum
UMFÍ fyrir tvö verkefni. Það eru Ungmennafélagið Fjölnir, sem var verð-
launað fyrir verkefnið Áfram lestur, og Ungmennafélag Njarðvíkur og
Keflavík, íþrótta- og ungmennafélag, sem saman hlutu viðurkenningu
fyrir samstarfsverkefnið Allir með, sem er sniðið að þörfum barna með
mismunandi stuðningsþarfir.
Einar Haraldsson, Keflavík, Ólafur Eyjólfsson, Njarðvík, og Málfríður
Sigurhansdóttir, Fjölni, veittu viðurkenningunum viðtöku.
Sólmundur Sigurðarson og Markús Ívarsson brosmildir á sambands-
þingi UMFÍ.
Svo skemmtilega vill til að þrír Mývetningar
voru sæmdir gullmerki UMFÍ á þinginu. Það
voru hjónin Gunnhildur Hinriksdóttir, fram-
kvæmdastjóri Héraðssambands Þingeyinga
(HSÞ), og íþróttalýsandinn landsþekkti Sigur-
björn Árni Arngrímsson, maður Gunnhildar,
ásamt Jóhönnu Kristjánsdóttur, dóttur Krist-
jáns Elvars, sem var gerður að heiðursfélaga
UMFÍ á þinginu. Jóhanna og Sigurbjörn Árni
voru jafnframt þingforsetar á þinginu á Húsa-
vík.
Haukur Valtýsson, formaður UMFÍ, sem
afhenti þeim gullmerkin, sagði Jóhönnu hafa
starfað innan ungmennafélagshreyfingarinn-
ar frá barnæsku og talsvert fyrir glímuíþrótt-
ina, ásamt því að hafa verið formaður HSÞ
eins og faðir hennar. Hann sagði einnig þau
hjónin vera fyrirmynd íþróttafólks, kærustu-
para og hjónakorna og kyndilbera ungmenna-
félagsandans.
Þrír Mývetningar
sæmdir gullmerki
Jóhanna Kristjánsdóttir, Gunnhildur Hinriks-
dóttir og Sigurbjörn Árni Arngrímsson
Haukur Valtýsson
kvaddur með stæl
Haukur Valtýsson var prýddur viðurkenning-
um á þinginu, sem var það síðasta sem hann
sat sem formaður UMFÍ. Jóhann Steinar Ingi-
mundarson, eftirmaður hans í formannsstól,
sæmdi hann gullmerki UMFÍ, auk þess sem
Hafsteinn Pálsson, annar varaforseti ÍSÍ, sæmdi
hann gullmerki ÍSÍ. Til viðbótar sæmdi Guð-
mundur Sigurbergsson, formaður UMSK,
Hauk heiðursskildi UMSK. Guðmundur sagði
Hauk hafa stýrt stjórn UMFÍ af sóma og áunnið
sér virðingu og vináttu bæði innan og utan
ungmennafélagshreyfingarinnar.
Jóhann Steinar Ingimundarson, nýr formaður
UMFÍ, sæmdi Hauk Valtýsson, fráfarandi
formann, gullmerki UMFÍ.