Skinfaxi - 01.03.2021, Síða 24
24 S K I N FA X I
T alið er að um 10% íbúa á Íslandi séu innflytjendur en samanlagt
er fyrsta og önnur kynslóð innflytjenda í kringum 12% allra
þeirra sem búa á Íslandi. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknar
sem Rannsókn og greining lagði fyrir alla nemendur í 8.–10. bekk á
Íslandi 2016 stunda 56% barna og ungmenna þar sem engin íslenska
er töluð á heimilinu nær aldrei íþróttir og 46% barna og ungmenna
þar sem íslenska er töluð ásamt öðru tungumáli stunda nær aldrei
íþróttir.
Níu umsóknir um flott verkefni bárust og af þeim voru fjórar valdar.
Hver styrkur nemur 250 þúsund krónum og er tímarammi verkefn-
anna veturinn 2021 til 2022.
Styrkhafar voru Dansfélagið Bíldshöfði, Héraðssamband Vestfirð-
inga (HSV), Sunddeild KR og Skautafélag Akureyrar.
Bjóða krökkum
upp í dans
Dansfélagið Bíldshöfði hefur í vetur verið í samstarfi við frístundastarf
Fellaskóla í Breiðholti og boðið 2. bekk grunnskóla í danstíma einu
sinni í viku. Dansfélagið hlaut styrk til að halda áfram með verkefnið.
„Styrkurinn mun nýtast mjög vel. Það hjálpar allt til við að bæta verk-
efnið,“ segir Ragnar Sverrisson, skólastjóri og danskennari Dansskól-
ans Bíldshöfða. Verkefnið hófst í september þegar nemendunum var
boðið að koma í danstíma í frístundatímanum.
„Þegar við byrjuðum hittist þannig á að 2. bekkur fór í sóttkví en við
höfum samt náð góðum tímum með þeim krökkum. Þeir taka mjög vel
í þetta og meirihlutanum finnst gaman í dansinum. Við kennum þeim
samkvæmisdansa, sem eru eina danstegundin sem er viðurkennd af
ÍSÍ. Þetta eru því suðuramerískir dansar og sígildir samkvæmisdansar
sem þau læra,“ segir Ragnar.
Danstímarnir eru kenndir í frístund, en frístundastarf nemenda í 1. og
2. bekk í Fellaskóla er samþætt skólastarfi. Börnin eru því í skipulögðu
skóla- og frístunda til klukkan 15:40, sem veitir þeim og foreldrum
þeirra heildstæða þjónustu. Markmiðið með danstímunum er að auka
tíma barnanna í íslensku málumhverfi og félagsfærni þeirra.
Hlutfall innflytjenda er hærra í Breiðholti en annars staðar á landinu
og því er hugmynd verkefnisins að einblína á Efra-Breiðholt.
„Við höfum einnig haft samband við aðila sem stýrir frístundastarfi í
Hólabrekkuskóla með sams konar samstarf í huga. Það samtal stendur
enn yfir,“ segir Ragnar. „Eftir áramót er stefnan tekin á að fjölga bekkj-
um sem verður boðin þátttaka og til að byrja með verður það senni-
lega 1. bekkur í Fellaskóla.“
Félög styrkt til að ná
betur til fjölskyldufólks
af erlendu bergi brotnu
Í lok september auglýstu Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) og Ungmennafélag
Íslands (UMFÍ) eftir umsóknum um styrki frá sérsamböndum, íþróttahéruðum og íþrótta-
og ungmennafélögum landsins vegna verkefna sem hafa það öll að markmiði að hvetja
börn og ungmenni af erlendum uppruna og fjölskyldur þeirra til þátttöku í skipulögðu
íþróttastarfi.