Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.03.2021, Page 29

Skinfaxi - 01.03.2021, Page 29
 S K I N FA X I 29 Stór atvinnugrein Ein af helstu niðurstöðum bókar Ágústs er að umfang íþrótta á Íslandi er hlutfallslega talsvert meira hér á landi en í helstu lönd- um. Engu skiptir hvar er drepið niður fæti, ef frá eru skilin Þýska- land og Austurríki. „Eina ástæðan fyrir þessu er sú að íþróttavöruframleiðsla er gríðarlega öflug í Þýskalandi og svo er skíðaíþróttin veigamikill þáttur í Austurríki. „En athugaðu að þetta eru aðeins beinu áhrifin. Óbein áhrif íþróttageirans á þætti efnahagslífsins eru mun meiri. Ef óbein áhrif bætast við jafngildir það 4% af landsframleiðslu, eða sem nemur 120 milljörðum króna. Önnur óbein áhrif tengjast því ekki, eins og virði forvarna. Það má því segja að íþróttageirinn sé risastór atvinnugrein hér á landi og spili stórt hlutverk í lífs- kjörum Íslendinga,“ segir Ágúst. Fyrrgreindar 12 tillögur og verklag í tengslum við þær eru rammi fyrir skipulögð vinnubrögð til úrbóta í málefnum íþrótta. Eitt það helsta sem íþróttir kenna er að ástundun og skipulögð vinnubrögð þarf til að ná árangri. Þessu er einnig þannig háttað við að bæta umgjörð íþrótta og efla þær. 1. Samstillt átak stjórnvalda og íþróttahreyfingar til að efla fræðslu um gagnsemi íþrótta. 2. Átak meðal eldri borgara um aukna íþróttaiðkun í samvinnu við félög eldri borgara, samtök fagfélaga heilbrigðisþjón- ustunnar og stjórnvöld. 3. Ríkisvaldið hefji viðræður við sveitarfélög um öfluga þátttöku ríkisins í fjármögnun við byggingu og rekstur mikilvægra inn- viða í íþróttum, sundlauga og leikvalla. 4. Gera átak í að efla afreksíþróttir hérlendis. 5. Ríki, sveitarfélög og íþróttahreyfingin vinni gegn mismunum, misbeitingu og misrétti í íþróttum. 6. Íþrótta- og ungmennafélög og samtök þeirra, Hagstofa Íslands, háskólar, ríki og sveitarfélög efli gagnasöfnun, upp- lýsingagjöf, gagnsæi og aðgengi um allt um íþróttir, m.a. um fjárhagslega þætti, og auðveldi rannsóknir um íþróttir sem mest, svo sem innan félags-, heilbrigðis- og menntavísinda. 7. Endurskoða íþróttastefnu stjórnvalda og gera kostnaðarmat á einstökum aðgerðum. Samþætta íþróttastefnu og heil- brigðisáætlun svo þær verði mikilvægasti þátturinn í bættri lýðheilsu og almennum forvörnum. 8. Skoða málefni íþrótta í nálægum löndum og skoða hvað megi innleiða hér. 9. Setja á fót nefnd til að fara yfir fjárhagsstöðu íþrótta- og ungmennafélaga. 10. Tímasetja allar tillögur frá upphafi til enda. 11. Ríkisvaldið leggi fram einn milljarð króna á ári í fjögur ár til að hrinda tillögunum í framkvæmd. 12. Gera skýrslu um framkvæmd tillagna og uppfæra hana árlega. 15.000.000.000 krónur er verðmæti af vinnu sjálfboðaliða á Íslandi á ári Tillögur til að efla íþróttir hérlendis 22 milljarðar króna eru fjárhagsleg umsvif íþrótta- og ungmennafélaga 2000 launuð ársverk eru innan íþrótta- geirans á Íslandi 27.000 sjálfboðaliðar vinna innan íþrótta- hreyfingarinnar

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.