Skinfaxi - 01.03.2021, Page 32
32 S K I N FA X I
Bakterían kom frá Bifröst
„Ég er austan úr Skaftafellssýslu, úr Skaftártungu, en á þeim tíma var
engin starfsemi hjá ungmennafélaginu þar. Ég var innan við tvítugt þeg-
ar ég kom til Víkur og þar voru fyrstu kynni mín af þessu starfi og þá
var ég fyrst kjörinn í varastjórn Ungmennafélagsins Drangs. Bakteríuna
fékk ég þó dálítið í Samvinnuskólanum á Bifröst, en ég útskrifaðist það-
an 1970. Þar var mikið félagslíf. Hann var sennilega eini skólinn á þeim
tíma sem var með sérstakan kennara til að sinna félagsstarfinu.“
Þegar Helgi er spurður hvernig fyrstu árin í starfinu í Vík hafi verið
segir hann: „Þarna hafði verið starfandi æskulýðsfélag sem séra Ingimar
Ingimarsson, prestur í Vík, stofnaði á sínum tíma. Síðan gerðist það með
„Hafsteins og Sigurðar vorinu“, sem stundum hefur verið talað um, að
það var ráðinn íþróttaþjálfari, Gylfi Þór Gíslason frá Selfossi, en í Vík var
fullt af krökkum sem vildu æfa íþróttir. Hann þjálfaði líka á Klaustri.
Gylfi var þarna eitt sumar með hléum kannski. Svo var haldið íþróttamót,
eða héraðsmót, á Klaustri og má segja að það hafi verið byrjunin á
þessu öllu. Þarna var engin þekking til staðar á einu né neinu verður
að segjast, og ég held ég megi segja að það hafi ekki verið starfandi
þar lærður íþróttakennari á þeim tíma.“
Rak menn úr eigin liði út af
Starfið hjá Umf. Drangi á þessum tíma var fyrst og fremst í kringum
íþróttirnar og þá mest fótbolta og frjálsar íþróttir. Helgi segir að ein-
hvern tíma hafi komið til hans strákar og langað til að æfa sig í körfu-
bolta í samkomuhúsinu Leikskálum. Þeir fengu ekki að fara í salinn nema
einhver fullorðinn væri með og fengu Helga í lið með sér. Helgi kunni
lítið fyrir sér í íþróttum en lét til leiðast. „Þetta voru flinkir strákar sem
m.a. fóru út að Selfossi í keppnisferð. Stelpurnar fengu engan séns eins
og tíðkaðist á þessum tíma. Einhvern tíma löngu seinna hitti ég Þráin
Hafsteinsson, sem vitnaði í það þegar ég hefði verið að dæma í þessari
ferð. Hann sagði að það hefði þótt tíðindum sæta þegar ég fór að reka
menn út af í mínu liði. Einhverjir fóru að rífast og mér þótti nóg um,“
segir Helgi.
Liðtækur í kórastarfi
Helgi bætir við að á þessum tíma hafi verið farið af stað með leiklist í
Vík líka. Þar steig hann fyrstu skref sín á leiksviði, sem hann segir að hafi
verið mjög skemmtilegt. Því má bæta við að auk leiklistarinnar hefur
Helgi alla tíð haft mikinn áhuga á söng og sungið í mörgum kórum.
Endurreisn Ungmenna-
sambandsins var
byrjunin á þessu öllu
Helgi Gunnarsson, fyrrverandi fjármálastjóri UMFÍ, er mörgum
kunnur innan ungmennafélagshreyfingarinnar. Hann hefur víða
komið við í gegnum tíðina. Helgi var ekki mikið í íþróttum sjálfur en
hafði mikinn áhuga á félagsmálum og hefur sinnt þeim af kappi alla tíð.