Skinfaxi - 01.03.2021, Qupperneq 35
S K I N FA X I 35
Helgi bregður á leik á brimbretti á stöðuvatninu Titisee í Svartaskógi í
Baden-Württemberg í Þýskalandi árið 2017.
mjög mikil áhrif á íþróttastarf félaga, sambanda og UMFÍ á þeim tíma.
Síðan kom Pálmi Gíslason, sem var allt öðruvísi en líka mjög áhuga-
samur. Hann hafði mikinn áhuga fyrir erlendum samskiptum og vakti
þau upp. Einnig alls konar verkefni. Það var t.d. hjólað hringinn í kring-
um landið í hans tíð.
Þórir Jónsson tók svo við af Pálma. Sæmundur sagði oft að hann
hefði fórnað mestu sem formaður af því að hann var sjálfstæður verk-
taki. Pálmi var í bankanum og hafði aðstöðu þar, skulum við segja, en
tímana hjá Þóri sem fóru í þetta gat hann ekki skrifað á neitt annað.
Björn B. Jónsson tók við af Þóri. Hann er hörkulíflegur og hafði áhuga
fyrir skóginum náttúrulega, enda skógfræðingur. Hann kom ýmsu góðu
til leiðar, vil ég meina. Uppbyggingin í Þrastaskógi og Þrastalundur
eru mikið til hans verk og reyndar Sæmundar líka.
Svo kom Helga Guðrún Guðjónsdóttir, fyrsta konan til að gegna
embætti formanns UMFÍ. Það voru náttúrulega tímamót í hreyfingunni.
Hún er hörkukona og ósérhlífin eins og allt þetta fólk.
Síðan er það Haukur Valtýsson tannlæknir á Akureyri. Það gilti kannski
það sama um hann og Þóri, hann gat ekki borað í tennur á meðan hann
var að sinna erindum fyrir hreyfinguna,“ segir Helgi.
Bölvaður rokkur en talaði umbúðalaust
„Ég kynntist svo auðvitað Sigurði Geirdal, framkvæmdastjóra UMFÍ.
Þegar ég var hjá UMSK var ég með aðstöðu á skrifstofu UMFÍ. Hann
var náttúrulega engum líkur. Mjög öflugur, bölvaður rokkur en talaði
umbúðalaust, en það þurfti oft í þessu starfi. Hann átti síðan farsælan
feril í stjórnmálunum eftir að hann hætti hjá UMFÍ.
Ég kynntist síðan Sigurði Þorsteinssyni, sem tók við af honum en
frekar stutt. Hann kom úr knattspyrnunni og var hugsjónamaður mikill.
Síðan vann ég mikið með Sæmundi, en við þekktumst frá gamalli tíð
enda báðir Skaftfellingar. Það verður ekkert af honum tekið að hann var
mjög öflugur. Ég er ekkert viss um að hreyfingin væri þar sem hún er
stödd í dag ef hans hefði ekki notið við. Þá vil ég sérstaklega nefna fjár-
aflanir og samskiptin við fjárveitingavaldið.
Svo tók Auður Inga Þorsteinsdóttir við, en hún kom í raun úr allt
annarri átt, sem var bara hið besta mál.
Ég held að fólk sem starfar innan hreyfingarinnar þurfi að hafa það
hugfast að það lifi aldrei sjálft sig í starfi og þekki sinn vitjunartíma.
Hættu á réttum tíma áður en það þarf að draga þig út á hárinu,“ segir
Helgi í lokin og glottir aðeins við.
´
P 187
C15 M100 Y100 K4
R172 G37 B43
Hlíðasmári 6 Kópavogi 510 7900
Austurlands
Takk fyrir stuðninginn