Skinfaxi - 01.03.2021, Síða 37
S K I N FA X I 37
fá flóttafólk til að stunda íþróttir, hefja viðræð-
ur við samstarfsaðila og fjárfesta við verkefni
á nýjan leik og hvetja fólk til að hreyfa sig á
nýjan leik.
Einn frummælenda á ráðstefnunni var dr.
Fiona Bull, sem segja má að sé málsvari lýð-
heilsu hjá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni
(WHO). Á borði stofnunarinnar eru átaksverk-
efni til langs tíma sem m.a. er ætlað að fjölga
þeim sem hreyfa sig í skipulögðu starfi og draga
með því úr tíðni hjartasjúkdóma, áunninnar
sykursýki og krabbameina. Áætlunin nær frá
2018 og stendur til ársins 2030. Markmiðið
er að á þessu tólf ára tímabili muni 15% fleiri
einstaklingar hreyfa sig meira og með skipu-
lögðum hætti en árið 2018.
Fjölga þarf tækifærum til hreyfingar
Dr. Bull áréttaði að vísbendingar um dapra
lýðheilsu fólks og hrakspár hefðu orðið til þess
að WHO ýtti átakinu úr vör. Ljóst væri að
COVID-faraldurinn hefði raskað öllum plönum
og því yrði að leggja harðar að sér en áður að
ná markmiðum áætlunarinnar og tryggja að
fólk yrði við betri heilsu eftir tæpan áratug en
lýst var í hrakspám stofnunarinnar. Í stað þess
að fólk hreyfði sig reglulega yrði að leita allra
leiða til að bjóða upp á fjölbreytta hreyfingu.
Það myndi hafa jákvæð áhrif á líf og heilsu
fólks til langframa.
Engu var líkara en að dr. Fiona Bull hefði
sammælst með Willum Þór Þórssyni, nýjum
heilbrigðisráðherra, um mikilvægi lýðheilsu.
„Stjórnendur íþróttafélaga og allir málsvar-
ar hreyfingar verða að leggjast á árarnar með
WHO, Sameinuðu þjóðunum og stjórnvöld-
um um allan heim til að bæta lýðheilsu fólks
og tryggja að allir geti hreyft sig. Við þurfum
að leggja áherslu á kosti hreyfingar. Þeir koma
ekki aðeins fram í bættri líkamlegri heilsu held-
ur hafa líka áhrif á andlega heilsu og hafa
félagslega kosti í för með sér,“ sagði hún.