Skinfaxi - 01.01.2022, Qupperneq 29
S K I N FA X I 29
Vorfundur UMFÍ
fór fram í Borgarnesi laugardaginn 30. apríl
sl. Fundurinn var vel sóttur og fóru fulltrúar sam-
bandsaðila UMFÍ heim með gott veganesti
eftir erindi og fræðslu dagsins enda mikið á
dagskránni.
Jóhann Steinar Ingimundarson, formaður
UMFÍ, setti fundinn. Á eftir fylgdi erindi Ragn-
heiðar Högnadóttur og Sigurðar Óskars Jóns-
sonar, sem sitja í stjórn UMFÍ, um Fræðslu- og
verkefnasjóð UMFÍ. Að því loknu ræddu Jóhann
Steinar og Ragnheiður Sigurðardóttir, starfs-
maður UMFÍ, um stöðuna á innleiðingu stefnu-
mótunar UMFÍ. Guðmunda Ólafsdóttir, fram-
kvæmdastjóri ÍA og stjórnarmaður í UMFÍ,
ræddi við fundargesti um pælingar um íþrótta-
héruð og stjórnarmennirnir Guðmundur G.
Sigurbergsson og Lárus B. Lárusson fræddu
fundargesti um sölu á þjónustumiðstöð UMFÍ
í Reykjavík og hvað taki við. Að lokum sögðu
Ómar Bragi Stefánsson, framkvæmdastjóri
móta UMFÍ, og Valdimar Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri UMSK, frá viðburðunum í sumar.