Úrval - 01.06.1956, Page 98

Úrval - 01.06.1956, Page 98
96 ÚRVAL halda." Hún stóð upp og bauð mér góða nótt með kossi og það var bros á andliti hennar. „Sofðu vel, væna mín," sagði hún. „Mér líður miklu betur eftir að ég hef sagt þér þessa triste petite histoire. Það er gott að létta á hjarta sínu." Að svo mæltu fór hún, en ég sofn- aði út frá hugleiðingum mínum um það hvernig Pierre hefði farið að því að láta kúluna fara þá leið sem hún fór. Mynd af Súsönnu. Þegar ég kvaddi Frakkland í ann- að sinn, var ég einráðin í að koma aftur eftir fáein ár. En þá kom síðari heimsstyrjöldin og það liðu nærri tveir áratugir áður en ég sá Lucienne frænku aftur. En af bréfum hennar fylgdist ég með málefnum fjölskyldunnar. Pierre tók doktorsgráðu sína og hlaut skömmu siðar stöðu sem ritari á- hrifamikils þingmanns í fulltrúa- deildinni. En stærstu tíðindin komu nokkrum árum seinna: „Pierre kvæntist i vikunni sem leið," skrif- afii hún. „Það var hátiðleg athöfn og margir háttsettir embættismenn sátu veizluna. Paul frændi þinn var í siðjakka og röndóttum buxum og vakti athygli fyrir glæsimennsku stna. Og nú verð ég að segja þér frá Súsönnu, konu Pierre," hélt hún áfram. „Hann hitti hana í veizlu hjá starfsbróður sinum. Hún er nokkrum árum eldri en hann, ekkja og á sex ára son. Ég get ekki með sanni sagt að hún sé lagleg, en hún klæðir sig vel. Hún er með jarpt hár, dálítið feitlagin og nokkru hærri en Pierre. Hún er ekki þannig, að ég hefði haldið að Pierre gæti orðið hrifinn af henni; hann var alltaf hrifnastur af ijóshærðum stúlkum. En það er annað sem gerir það að verkum, að hjónabandið mun verða farsælt. Sús- anna er sem sagt vel efnuð. Hún hefur erft miklar fasteignir eftir föður sinn og laglegan skilding eftir fyrri mann sinn. Hún er metorða- gjörn og er sannfærð um að Pierre eigi mikla framtíð fyrir sér. Að þessu leyti eru þau lik. Þó að ekki sé með sanni hægt að segja að þau hafi gifzt af ást, er ekki hægt að sjá annað en þeim þyki vænt hvoru um annað, og ég er viss um að þau verða hamingjusöm." 1 næstu bréfum voru meiri fréttir af Pierre og Súsönnu. Þau bjuggu í stórri íbúð í nánd við Boulogneskóg, höfðu tvær þjónustustúlkur og bíl- stjóra; fyrir áeggjan konu sinnar hafði Pierre sagt upp stöðu sinni hjá ríkinu, sett á stofn lögfræðiskrif- stofu og gerzt lögfræðingur stórrar iðnaðarsamsteypu. Seinna blönduðust saman við fréttirnar af Pierre á- hyggjur út af yfirvofandi styrjöld við Þjóðverja. Árið 1939 skrifaði hún mér, að Pierre væri orðinn liðsfor- ingi og gegndi herþjónustu við Ma- ginotlínuna. Viðhorf hennar til stríðs- ins var einfalt og útúrdúralaust. I huga hennar var enginn efi. „Frakk- ■ land á i baráttu við ófreskju í manns- mynd," skrifaði hún, „en Frakkland mun sigra." Annað áhyggjuefni Lucienne um þessar mundir var i sambandi við Súsönnu. ,,Á þessum hættutímum
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.