Úrval - 01.06.1956, Blaðsíða 114

Úrval - 01.06.1956, Blaðsíða 114
112 ÚRVAL þín það fram einungis vegna þess, að hún heldur að það sé betra fyrir mig' en að fara á maison de retraite.“ „En það er löngu útrætt mál,“ sagði hann æstur. „Við höfum fall- izt á að þú verðir kyrr þar sem þú ert." „Já,“ sagði Lucienne og leit fast á hann. „Þú féllst á það af því að ég lét koma krók á móti bragði. Ég hótaði að giftast eignalausum öldungi, ef þú héldir fast við kröfu þina að ég færi á þetta heimili." Eg sá, að Pierre bjóst til að segja eitthvað, en hún þaggaði niður í hon- um með því að lyfta hendinni. Það var virðuleiki og festa í rödd hennar þegar hún hélt áfram. „Hlustaðu nú á, Pierre, og þú líka, Súsanna. Ég á ykkur báðum mikla þakkarskuld að gjalda. Ég hef frá upphafi vitað, að pabbi ykkar lét ekkert eftir sig, og að hver eyrir sem ég hef eytt er frá ykkur kominn. Ég veit að ef þið viljið, getið þið neytt mig til að yfirgefa heimili mitt. Ég gæti nú sagt, að ef til þess kæmi, mundi ég biðja frænku þína að taka mig á heimili sitt, en ég ætla ekki að segja það, af því að ég fer aldrei til Ameríku." Rödd hennar brast lít- ið eitt. „Eli bien, mes petites,“ sagði hún að lokum, „nú hafið þið öll spil- in á hendinni." Það varð dauðaþögn eftir þessi orð Lucienne. Svo heyrði ég stól ýtt til og sá í gegnum tármistruð augun hvar Pierre gekk til móður sinnar. Undurblítt lyfti hann andliti hennar og kyssti hana á báðar kinnar. „Elsku mamma," sagði hann lágt. „Chére petite mamma." Og svo bætti hann við með áhrifaríkum tilburð- um, sem hann hafði tekið í arf frá móður sinni: ,,Ég sver þér, og kalla guð og Rose til vitnis, að við skul- um aldrei svo mikið sem minnast á þetta maison de retraite. Þú skalt fá að vera þar sem þú ert þangað til þú deyrð!" Súsanna, sem hafði verið að snýta. sér í laumi, kinkaði kolli til sam- þykkis. „Skál fyrir mömmu," sagði hann. „Megi hún lifa glöð og ánægð í mörg ár enn!" Það brá fyrir bliki í augum hans um leið og hann setti glasið sitt niður. „Og nú ætla ég að gera játningu, mamma," sagði hann. „Þegar ég fór að hugsa nánar um þetta uppátæki þitt að giftast, fann ég á mér að það var ekki annað en herbragð hjá þér. Ég sagði Súsönnu frá þessu hugboði mínu, en hún vildi ekki trúa því. Hún þekkir þig ekki eins vel og ég.“ Móðir og sonur sendu hvort öðru íbyggið, ástúðlegt augnatillit. „En segðu mér, mamma," hélt hann áfram, „hvað hefðirðu gert, ef ég hefði samþykkt giftingu þína?" Lucienne hló, og það var öryggi og fögnuður í hlátrinum. „Góði minn," sagði hún, „ég hefði sótt lækni og sent þig rakleitt til Cha- renton. Þangað," bætti hún við til skýringar fyrir mig, „sendum við þá, sem ekki eru alveg með öllum mjalla." 0-0-0
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Úrval

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.