Bókasafnið


Bókasafnið - 01.02.1999, Side 53

Bókasafnið - 01.02.1999, Side 53
Óðurinn um fröken ÞM tuttugu ára Lagboði: Óðurinn um árans kjóann hann Jóhann (írskt þjóðlag) Texti: Nanna Bjarnadóttir Þjónustumiðstöð á afmæli í ár, við ætlum að gleðjast við þrúgunnar tár. Ut með masið, árans þrasið. Upp með glasið og fögnum í dag. Hún fæddist í kommóðu fátæk og ljót, af fágætri bjartsýni komst hún á fót. Út með masið, árans þrasið. Upp með glasið og fögnum í dag. Hún nærðist á spjöldum og bókaskrá blá var barninu gefin að næra sig á. Út með masið, árans þrasið. Upp með glasið og fögnum í dag. Við eignuðumst miðstöð sem eitt sinn var og átti víst lítið af peningum þá. Út með masið, árans þrasið. Upp með glasið og fögnum í dag. Þær læðast hægt um laut og gil og leyndarmálin bera, á hrúgu af kössum heldur ein og hinar sama gera. Úr spýtnarusli reisa borð og reka af sér slyðru-orð, því aðgerðarhópurinn hugsar um sína, þær Hulda og Marta og Pálína. Þó óx hún að viti og vexti sú mær og varð loksins myndarleg, heilbrigð og fær. Út með masið, árans þrasið. Upp með glasið og fögnum í dag. Nú er hún tvítug og þrifleg og þétt og þjónustulipur ef biðjum við rétt. Út með masið, árans þrasið. Upp með glasið og fögnum í dag. Hún selur sig hverjum sem þjónustu þarf, að þóknast svo mörgum er heilmikið starf. Út með masið, árans þrasið. Upp með glasið og fögnum í dag. smá Hvort vantar þig bókasafnsbúnað og plast, bæklinga, eyðublöð, laust eða fast? Út með masið, árans þrasið. Upp með glasið og fögnum í dag. Lautarferð afmælisgesta Lagboði: Vísur rœningjanna (Egner) Texti: Nanna Bjarnadóttir I glerbúðinni finnst það flest sem freistar kátra gesta. Meðlætið er meira en nóg, í matinn allt það besta. Ef skálarræðan skyldi löng þær skemmta oss með gleði söng, því aðgerðarhópurinn hugsar um sína, þær Hulda og Marta og Pálína. WfL Af kvenlegu innsæi er kaupmennskan háð, ef kaup eru staðgreidd fást ókeypis ráð. Út með masið, árans þrasið. Upp með glasið og fögnum í dag. Af reynslu hin hagsýna húsmóðir má halda um pyngjuna nú eins og þá. Út með masið, árans þrasið. Upp með glasið og fögnum í dag. Samt býður hún öllum sem eiga hér fund í afmælisveislu á fagnaðarstund. Út með masið, árans þrasið. Upp með glasið og fögnum í dag. Þjónustumiðstöðvar þiggjum við skál, þjórum og gleðjumst af lífi og sál. Út með masið, árans þrasið. Upp með glasið og fögnum í dag. Vér þramma skulum þeirra slóð í þurru jafnt sem blautu. Þær taka oss með pomp og prakt í Paradísarlautu. Allar skuldir Erna fær, hún er í ráðum bak við þær, því aðgerðarhópurinn hugsar um sína, þær Hulda og Marta og Pálína. Bókasafnið 23. Arg. 1999 51

x

Bókasafnið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.