Bókasafnið - 01.02.1999, Blaðsíða 89
Viðbót við Bókasafnsfrœðin<gatal
Olga Harðardóttir
bókasafnsfræðingur
Formaður ritnefndar Bókasafnsfræðingatals, Kristín H. Pétursdóttir, fór þess á leit við ritstjóra Bókasafnsins, að birt yrði
æviágrip Olgu í blaðinu þar sem enginn nefndarmanna vissi af þessum starfsfélaga fyrr en eftir útgáfu bókarinnar í apríl
1998. Olga stundaði sitt nám og starf á sviði bókasafnsfræði að mestu leyti erlendis.
OLGA HARÐARDÓTTIR f. 3. júní 1960 í Reykjavík, d.
þar 11. ágúst 1998. Uppeldisstaður: Reykjavík. Búseta:
Helsinki, Stokkhólmur, Reykjavík.
For.: Hörður Bergþórsson,
stýrimaður, lengst af á
Þorsteini RE, búsettur í
Reykjavík, f. 30. nóv. 1922
á Akureyri, d. 10. nóv.
1986 í Reykjavík, og k.h.
Sigrún Lovísa Sigurðar-
dóttir, húsfreyja, starfstúlka
á St. Jósepsspítala í Reykja-
vík, f. 28. apríl 1922 á
Isafirði.
Föðurfor.: Bergþór Bald-
vinsson, verkamaður á
Akureyri, f. 12. des. 1889 á
Sörlastöðum, Hálshr., S.-
Þing., d. 25. nóv. 1963 í
Reykjavík, og k.h. Olga
Olgeirsdóttir, húsfreyja á
Akureyri, f. 18. maí 1894 á
Efri-Dálksstöðum, Sval-
barðsstrandarhr., S.-Þing., d. 16. jan. 1952 á Akureyri.
Móðurfor.: Sigurður Sigurðsson, sjómaður, hafnarvigtar-
maður á Isafirði, síðar búsettur í Reykjavík, f. 22. mars 1896
á Kleifum, Súðavíkurhr., N.-fs., d. 4. des. 1987 í Reykjavík,
og k.h. Guðrún Guðmundsdóttir, húsfreyja á Isafirði, síðar
búsett í Reykjavík, f. 2. sept. 1895 á Þúfusteini á Hellis-
sandi, d. 19. júlí 1982 í Reykjavík.
Nám: Stúdent máladeild MR 1980. B.A.-próf í frönsku og
finnsku HÍ okt. 1988. Lokapróf í bókasafnsfræði Högskolan
i Borás 1989- Nám í frönsku í Strassborg 1981-82. Nám í
finnsku Helsingin Yljapisto 1984-85.
Störf: Starfsmaður Nordisk Konstcentrum í Sveaborg í
Finnlandi 1985-87. Starfs-
maður Svenska Sprákinsti-
tutet í Stokkhólmi 1986-
87. Bókasafnsfræðingur í
læknisfræðibókasafni í
Stokkhólmi 1988-90. Bóka-
safnsfræðingur á SIPRI,
Stockholm International
Peace Research Institute, í
Stokkhólmi frá sept. 1990-
97. Sá m.a. um efnislyklun
tímarita og uppbyggingu
gagnagrunna. Aðstoðarmað-
ur við ýmis rannsókna-
verkefni stofnunarinnar.
Starfsmaður Mynda- og
greinasafns Morgunblaðsins
frá okt. 1997 til dauðadags.
Maki: 7. jan. 1995, George
Alexander Serna Marchán,
próf í læknisfræði frá Rúmeníu, læknir í Stokkhólmi, síðar
búsettur í Reykjavík, f. 16. maf 1954 í Kolumbíu.
Sonur þeirra: Róbert Alexander Alexandersson f. 3. nóv.
1992 í Stokkhólmi, búsettur í Reykjavík.
Skyldleiki eða vensl við aðra bókasafnsfræðinga: Val-
gerður Höskuldsdótdr og Olga eru af 2. og 3. ættlið (faðir
Valgerðar föðurbróðir Olgu).
Heimildir: Ættartal Höskulds Baldvinssonar. Minningar-
greinar í Morgunblaðinu 21. ágúst 1998.
Bókasafnið 23. Arg. 1999
87