Læknaneminn - 01.04.1985, Page 14
Próf. Sigurður S. Magnússon
Fæddur 16. apríl 1927
Dáinn 21. október 1985
Læknanemar urðu harmi slegnir
er þeim var tjáð að deildarforseti
þeirra, prófessor Sigurður S.
Magnússon, hefði látist að
kvöldi 21.10. ’85. Sigurður varð
prófessor í kvensjúkdómum og
fæðingarhjálp við læknadeild
H.í. 1975 og gegndi því starfi til
dauðadags. Hann var vinsæll og
dáður af stúdentum vegna fram-
úrskarandi kennslu og skipu-
lagningu í verklegu námi. Hann
var vökull og síleitandi í fræði-
grein sinni og var mikilsmetinn
af læknum, hérlendum sem er-
lendum, fyrir frábært framlag
sitt til sérgreinar sinnar. Sigurð-
ur var alla tíð að leita að því sem
betur gæti farið í kennslu og
kennsluháttum og hafði um það
náið samráð og samstarf við
nemendur. Sigurður var deildar-
mæta síauknum kröfum sem
gerðar eru til læknanema í dag.
forseti læknadeildar síðasta
starfsárið og við nemendur
minnumst hans sem mikilhæfs
kennara og frábærs stjórnanda.
Hann studdi og hvatti stúdenta
með ráðum og dáð í hagsmuna-
málum okkar. Hann hafði mik-
inn áhuga á kennslu í læknadeild
og hafði uppi mikil áform um
endurskoðun á námsefni til að
Sigurður var mikill vinnuþjarkur
og gerði miklar kröfur til sín og
annarra.
Mikilhæfur kennari og vinur
er fallinn í valinn langt um aldur
fram, hann var öllum harmdauði
sem kynntust honum. Lækna-
nemar senda fjölskyldu hans og
ástvinum innilegar samúðar-
kveðjur.
Fyrir hönd Félags
læknanema
Þorvaldur
Ingvarsson
LÆKNANEMINN >/1915 - 38. árg.