Læknaneminn - 01.04.1985, Page 17
Eðlilegt fremra krossband í liðspeglun.
lýsingar. Kemur þar margt til. Hnéð
er sá liður í manninum sem oftast er
utsettur fyrir áverkum þar sem lið-
speglunin gefur ómetanlegar upplýs-
ingar. Auk þess er hnéð tiltölulega
víður liður þannig að auðvelt er að fá
góða yfirsýn.
Liðspeglun er öruggasta greining-
araðgerðin á fjölmörgum sjúkdóm-
um og áverkum á liðbrjóski, liðþóf-
um og liðböndum í hné. Rannsóknir
hafa sýnt að liðspeglun er mun ör-
uggari greiningaraðferð en röntgen-
rannsókn með skuggaefni (arthro-
grafi) og almenn skoðun (6,9,18).
Rétt greining fæst í 95-98% tilvika.
Með liðspeglun er hægt að sjá útlit
liðbrjósks, t.d. byrjandi slitbreyting-
ar, útlit liðpoka, t.d. bólubreytingar,
rof á liðböndum og rof eða breyting-
aráliðþófum (20).
Liðspeglun á hné er gerð til þess
að fá sjúkdómsgreiningu sem ná-
kvæmasta þannig að meðferð verði
hnitmiðuð. Liðspeglun kemur ekki í
staðinn fyrir almenna skoðun og
röntgenmyndatöku, en er mikilvægt
hjálpartæki til nákvæmrar sjúkdóms-
greiningar ásamt fyrmefndum atrið-
um.
Venjulegast er liðspeglinum
stungið inn í liðinn framan frá í gegn-
um ligam.patellae ca. 1.5 cm. fyrir
ofan sköflung.
Velja má aðra staði til að stinga
liðspeglinum inn, t.d. innanvert eða
utanvert við ligam. patellae eða ofan
LÆKNANEMINN '/1985 - 38. árg.
frá til að bæta yfirsýn yfir liðinn (4,
11, 12, 13).
Um leið og liðspeglun er fram-
kvæmd er oft gert stöðugleikapróf til
að kanna liðbandaáverka (17).
Kanna má hvemig fremra og aftara
krossband strekkjast meðan stöðug-
leikaprófið er framkvæmt með því að
horfa samtímis á þau í liðspeglinum.
Á öllum stigum er hægt að nota lítinn
krók eða haka til að spenna eða
hreyfa krossbönd eða liðþófa og
kanna þar með rifur í krossböndum
og liðþófum (20).
Með því að beygja eða rétta hnéð
og snúa fætinum inn á við eða út á
við má fá fram mismunandi stöðu á
liðþófum og liðböndum og bæta
þannig yfirsýn og sjá rifur sem ann-
ars gætu leynst.
Helstu ábendingar fyrir liðspeglun
á hné em:
1. Blœðing í hné eftir áverka.
Um það bil 50-70% sjúklinga með
blóði fylltan hnélið eftir snúnings-
áverka hafa áverka á fremra kross-
bandi. Aðeins helmingur þessarra
krossbandsrifa greinast við stöðug-
leikaprófun í svæfingu (16, 17).
Auk áverka á krossbönd sjást oft
um leið rifur á liðþófum, brjósk-
áverkar og blæðing eða rifa á lið-
poka.
2. Grunur um liðþófarifu.
Liðspeglun er nákvæmasta rann-
sóknin til greiningar á liðþófarifum.
Liðspeglun er mun nákvæmari en
röntgenrannsókn með skuggaefni (6,
7,9, 18).
3. Liðmús.
Með liðspeglun er unnt að staðsetja
jafnvel minnstu liðmýs.
4. Brjóskskemmdir á hnéskel.
Venjulega er greining á chondromal-
acia patellae byggð á sögu og ein-
kennum sjúklinga.
í ljós hefur komið að greiningin er
óömgg og aðrir sjúkdómar gefa mjög
oft svipuð einkenni.
Þessa greiningu er því ekki hægt
að gera nema að undangenginni lið-
speglun (4). Hægt er að gera sér
grein fyrir útbreiðslu og dýpt brjósk-
skemmdanna og jafnframt athuga
legu og hreyfingu hnéskeljar.
5. Liðpokabólga.
Helsta ástæða til að framkvæma lið-
speglun í bráðum eða langvinnum
liðpokabólgum (synovitis) er að
komast að undirliggjandi ástæðum
svo sem rifinn liðþófi, gamall kross-
bandaáverki og brjóskáverki. Taka
má sýni í vefjarannsókn ef engin sér-
stök ástæða fmnst fyrir liðpoka-
bólgu.
6. Eftir aðgerð.
Mat á brjóskflötum fyrir og eftir háa
fleygun á sköflungi vegna slitgigtar á
hné.
Mat á ástandi krossbanda eftir
krossbandaaðgerðir.
Liðspeglun á hné er nákvæm
greiningaraðgerð á ýmis konar sjúk-
dómum og áverkum á hné (8, 13).
Hún gefur möguleika á meðferð sem
er viðaminni og einfaldari en fyrri
aðferðir. Bati verður því fljótari og
óþægindi minni. Fylgikvillar eru
Eðlilegt fremra krossband og condylus
fem. med. í liðspeglun.
15