Læknaneminn - 01.04.1985, Síða 27
tæk bólusetning losaði menn því ekki
eingöngu við sýkinguna heldur
minnkaði tíðni lifrarkrabba líka.
Delta antigen tengdur hep-
atitis B
Delta sýkillinn er víruslíkt fyrirbæri,
um 35-37 nm í þvermál, sem líkist
stóru HBsAg. Yst er reyndar hjúpur
úr HBsAg. Þar innanvið er delta an-
tigenið og í því lítið RNA mólikúl.
(Mynd 7)
Álitið er að þessi delta sýkill sé
ófullkominn vírus sem þarfnist HBV
myndunar til að geta tjölgað sér,
enda er hann alltaf tengdur HB.
Hann er líklega dreifður um allan
heim en vitað er að hann er landlæg-
ur á Suður-Ítalíu.
Vitað er að smitleið er utan garnar;
með blóði og efnum unnum úr því en
aðrar leiðir gætu verið til staðar.
Tekist hefur að sýkja simpansa en
annars er maðurinn eini þekkti hýsill-
inn.
Delta antigen tengdur hepatitis er
að jafnaði alvarlegri en HB og veldur
frekar krónískri mynd. Venjulega
dregur úr myndun HB V-hluta og get-
ur hún minnkað svo að þeir verða
ógreinanlegir.
Prófanir fyrir delta antigeninu
byggja á sömu forsendum og fyrir
HBcAg. Finnst það í sermi seint á
meðgöngutíma sjúkdómsins og
snemma í bráðafasa sýkingarinnar.
Myndun anti-delta er svipuð og
myndun anti-HBcAg. Ónæmi skap-
ast fyrir sýklinum og er talið vera
fyrir áhrif mótefna gegn yfirborðsan-
tigenum.
LÆKNANEMINN 1/1985 - 38. árg.
Hepatitis non-A, non-B
(HNANB)
Þetta heiti er notað yfir hepatitis af
völdum vírusa, sem eru óskyldir
HAV og HBV serologiskt.
Kannanir hafa sýnt að í þróuðum
löndum nemur þessi gerð allt að
20% af viral hepatitis og líklega
finnst hún um allan heim.
Smitleiðir eru bæði um gamir og
utan og er talið að um mismunandi
vírusa sé að ræða fyrir hvora leið.
Ekki hefur þó enn tekist að flokka þá
nánar. Sumir hafa lýst 22-27 nm
stóru fyrirbæri í sambandi við tilfelli
af HNANB. Aðrir HBV líkri ögn í
öðrum. Engin serologisk próf hafa
samt fundist sem einkennandi eru
fyrir þessar sýkingar. Tekist hefur að
sýkja apa með sermi úr HNANB
sjúklingum.
Sjúkdómurinn (- amir) er venju-
lega eitthvað mildari en HB en krón-
iskt form er þekkt og í þeim tilvikum
sýna vefjasneiðar úr lifur merki um
virka sýkingu. Lifradrep er minna en
í HB og færri tilfelli leiða til skorpu-
lifrar. Frumulytiskar skemmdir með
lítlli bólgufrumuígerð eru einkenn-
andi í lifrarsýnum. Króniska formið
fjarar hraðar út en við HB.
í hlutum Asíu hefur verið lýst far-
öldrum af smitandi hepatitis sem er
líkur HA. Þetta er bráð sýking, al-
gengust meðal ungs fólks, með með-
göngutíma 30-40 daga. Talið er að
hann berist með saurmenguðu vatni
og mat. í einu tilfelli tókst að sýna
fram á ca. 27 nm stórar agnir, svip-
aðar vírus, í saur sjúklings í bráða-
fasa. í sermi sjúklingsins í batafasa
og annarra sjúklinga með þennan
sjúkdóm hlupu þessi fyrirbæri í kekki
(aggregation).
Verið getur að hér sé um að ræða
annan stofn af HAV en frekari upp-
lýsingar eru nauðsynlegar til að hægt
sé að draga þennan vírus í dilk.
Aðrir vírusar en þeir sem hér er fjall-
að um geta valdið hepatitis. Ekki
verða þeir tíundaðir nú en nefna má
Herpes fjölskylduna, rauða hunda
(meðfædda), gulusóttar (yellow
fever) vírusana o.fl. Oft er um að
ræða sjúkdóm sem gerir vart við sig
víða í líkamanum og breytingar í lifr-
arstarfsemi einn þátt hans.
í grein þessari hef ég reynt að gera
grein fyrir gerð og eðli hinna eins-
töku vírusa sem valda hepatitis í sem
allra stystu máli. Einnig tekið fyrir
það sem nú er efst á baugi í sambandi
við serologiska aðgreiningu þeirra og
varnir gegn þeim. Minna hefur verið
talað um einkenni, vefjamein og
framvindu sjúkdómanna sjálfra enda
aðgengilegt í flestum kennslubókum.
Víða um heim eru í gangi miklar
rannsóknir á þessum vírusum og því
má vænta að þekking manna á þeim
aukist mikið í nánustu framtíð.
Að lokum vil ég þakka Margréti
Guðnadóttur góð ráð og ábendingar.
1. H. Briem, O. Weiland, I. Friðriksson,
R. Berg. Prevalence of antibody to
hepatitis A in Iceland in relation to
age, sex and number of notified cases
of hepatitis. Am J Epidemol 1982;
116:451-5.
H. Briem. Erindi flutt á 6. þ.ingi Félags
íslenskra lyflækna.