Læknaneminn - 01.04.1985, Síða 58
lestina var drepið í hvert skot. Ef
lestarvagn á Ítalíu er smíðaður
fyrir 50 manns þá má reikna með
að í honum séu 150 manns. Þeir
sitja á gólfinu, liggja, standa á kló-
settganginum o.s.frv. Svefnvagn-
ar þar suðurfrá eru hannaðir fyrir
sex, ekki er óalgengt að sjá tvo
eða þrjá í hverri koju. Síðan sofa
menn á gólfinu og þar sem far-
angurinn átti að vera. Heppnin var
með okkur því prestur, sem sagði
okkur síðar að hann væri leið-
sögumaður í Vatikaninu tók okkur
upp á arma sína og leiddi til sætis
í klefa sínum, en þar voru auk
okkur ýmsir villuráfandi sauðir.
Drengur frá svörtustu Afríku og
tveir bændur frá Sikiley sem höfðu
verið að leita sér lækninga í Mí-
lanó. Patríarki þessi sá um að
menn svæfu og átu til skiptis, allt
eftir þörfum hvers og eins nema
hans sjálfs. Við tókum síðan lest
frá Róm til Palermo og enduðum á
gólfinu á klósettganginum ásamt
þremur þýskum ungmeyjum, þær
voru hressar með ferðamátann og
hrósuðu happi yfir því að fá heilt
horn útaf fyrir sig til að liggja í, en
auk okkar fimm voru tveir ítalir á
ganginum sem var að flatarmáli
eins og lítið hjónarúm og var ekki
manngengt á klósettið nema beita
fyrir sig leikfimi eða Jazzballett.
Þær þýsku kenndu okkur að spila
Olsen-Olsen upp á þýsku sem
reyndar er eins og hér heima utan
að sagt er ulla-ulla þegar við á.
Sem við sátum og spiluðum ulla-
ulla gerðist hið ómögulega, lestin
stoppaði og inn þustu fimm ungir
ítalir þrátt fyrir hávær mótmæli
þarlendra þ.e. tutto occipiadio
o.s.frv. Þeir lögðust eins og ormar
á gólfið og nú voru 11 manns á
ganginum.
Við komum til Palermo um há-
degisbilið í 45 stiga hita. Svefn-
lausir, skapvondir og síðast en
ekki síst mállausir hófum við leit
að Policlinico Palermo. Það
reyndist erfitt því enginn innlendra
talaði ensku og urðum við því að
læra ítölsku og það pronto. Við
reyndum að spyrja hina og þessa
til vegar og bar flestum saman um
að við værum asnar að vera þvæl-
ast með bakpoka í þessum hita,
hins vegar bar þeim ekki saman
um staðsetningu okkar ágæta
pensionats. Eftir um 2 klst. ágæt-
an göngutúr um miðborg Palerm-
ovorum við komnir að því virtist í
fátækrahverfið í bænum, alla
vega var mikið af börnum að
gramsa í drasli og hundar í matar-
leit í ruslatunnum. Við fórum
umsvifalaust með bænir okkar og
tókum að rifja upp bacteriologiu
Arinbjarnar. Allt í einu vorum við
staddir framan við eitthvað sem
líktist helst fangelsi. Þar hittum við
mann sem sagði okkur það í frétt-
um að við stæðum á tröppum títt-
nefndrar klíníkur. Við knúðum
umsvifalaust dyra en enginn
ómakaði sig við að svara og eftir
mannsaldur kom bíll akandi og í
honum maður, að því er virtist
nokkuð glaður, hann talaði mikið
en við skildum lítið. Hann lauk upp
56
LÆKNANEMINN Vms - 38. árg.