Læknaneminn - 01.04.1985, Page 63
klæðum með hálfan gullforða
landsins framan á loðnu brjóstinu.
Hann hafði greinilega ekki þörf
fyrir að prýða ásjónu sína með
naska eða hafa dulu á hausnum.
Hvað um það, hann sauð og
hreinsaði áhöld af miklum móð
aftir því sem hann fann í draslinu.
Ur þessu herbergi var innangengt
en engin hurð, enda bara skurð-
stofa í næsta herbergi og þar inni
ftalir að skera. Við frusum í gætt-
'nr|i, íklædd stuttbuxum og sand-
ölum. Læknirinn sem fylgdi okkur
hóf þegar viðræður við chirurga
°9 virtust þeir hinir ánægðustu
r^eð heimsóknina, enda ekki
aema fimm manns í stuttbuxum á
miðju gólfi hjá þeim í miðri
aðgerð. Við fimmmenningarnir
hófum þegar umræður um við-
brögð chirurga, hvort þeir myndu
henda í okkur hnífum eða öskra
en hvorugt gerðist. Nú fór fjölg-
andi á stofunni, fleiri lækna bar
þar að og voru allir í hrókasam-
ræðum. Seinna sáum við að
skurðstofan virtist einhverra hluta
vegna vera aðalsamkomustaður
allra á clinicinni án tillits til hvort
aðgerð var í gangi eða ekki. Stof-
an leit út sem skurðstofur
almennt, en þó þótti okkur við
hæfi að hafa hurðir í gættum þar
sem hægt væri að koma því við.
Tveir aðrir inngangar voru í stof-
una, annar fyrir sjúklinga en hinn
fyrir starfsfólk, þar inni af var her-
bergi
sem í var ískápur með
hengilás auk fleiri hundruð pakka
af saumagarni. Þarna inni hófum
við leit að þvottaaðstöðu en hún
mun vera til staðar á stöðum sem
þessum. Þá vakti athygli okkar
hvítur postulínsvaskur samskon-
ar þeim sem brúkaðir eru á sal-
ernum, og viti menn, hjá vaskinum
var opið inn á klósett. Undir
vasknum var forláta grænn dúkur
°9 í honum tveir burstar auk hi-
biscrub brúsa. Þarna var þvotta-
aðstaðan fundin. Við þennan vask
þvoði allt teymið sér allan morg-
uninn. Hvað græna lakið átti að
fyrirstilla fengum við aldrei að vita
en þeir virtust álíta allt grænt
sterilt, þ.e. allt er vænt sem vel er
grænt. Einhverra hluta vegna þótti
fólki ekki við hæfi að við spásser-
uðum um á stuttbuxum og því
voru okkur fengir grænir kyrtlar og
stígvél úr undarlegum þappír.
Eitthvað var okkur stirt um hreyf-
ingar í þessu enda uppaldir við að
hlutir eru ekki sterílir eftir að hafa
„óhreinkast" en chirurgar virtust
sannfærðir um að allt væri sterílt
þar til þeir ákvæðu annað. And-
rúmsloftið varð þá fyrst skrýtið er
við hugðumst setja upp skuplur
þær sem þarna voru til boða og
voru af þeirri gerð er orthopedar
gjarnan nota. Ég ætlaði sem sé að
setja skupluna upp eins og lög
gera ráð fyrir þ.e. hylja hárið og
binda undir höku. Þá hljóp til kven-
læknir einn og tilkynnti að þetta
væri bæði brutto og þuko, þ.e.
hallærislegt og setti á mig skupl-
una svo fegurðarskyni þeirra væri
ekki misboðið. Þeir tóku upp eitt
stór sett af verkfærum á morgn-
ana og notuðu svo af því allan
daginn. Síðan var þorðinu með
verkfærunum ýtt út í horn með
grænum klút yfir milli aðgerða.
Engar skurðstofuhjúkkur voru
heldur, aðeins aðstoðarlæknar í
starfsþjálfun og voru einir fimm í
teimiu.
Einn daginn mættum við og
voru ítalir að skera ungan mann
og bjuggust til að taka úr honum
sull neðarlega úr lobus dexter
lifrar. Við bjuggumst við litlum
nettum skurð, en ekki aldeilis,
maðurinn var skorinn frá process-
us xiphoideus sterni að hrygg eða
með öðrum orðum í tvennt. Chir-
urgar virtust hafa gott handbragð
Sullur unga ítalans.
og vera handfljótir en þó fannst
okkur óþarfi að skera á æðar og
brenna þær svo en þeir brenna
nær allar æðar. Þegar sullinum
var náð tóku þeir botnlangann
enda hægt um vik því skurðurinn
stór.
Nú var pása og héldum við að
nú kæmu ítalskar sóknarkonur til
hreingerninga en það reyndist
pjatt því stofan var hvorki þrifin né
skipt um lök á borðinu enda sjálf-
sagt óþarfi. Chirurgar voru
ánægðir með feng sinn og struns-
uðu með sullinn inn á sterila her-
bergið, lögðu á lag og mynduðu
og við líka. Síðan kölluðu þeir á
professori sem staðfesti góðfús-
lega að þetta væri sullur og síðan
fór hann að reyna ná frímerkjum
út úr Tyrknesku stelpunni enda
var hann mikill frímerkjasafnari.
Næsta aðgerð var mammabí-
opsía á konu yfir sextugsaldri
með frystiskurði en meðan náð
var í konuna fengu chirurgar sér
expresso kaffi sem þeir helltu upp
á úti í horni og fengu sér að
reykja. Við það fengum við um-
ræðuefni fyrir næsta árið. Nú var
sjúklingnum rúllað inn og öll henn-
ar fjölskylda með. Ekki var hún
lögð á skurðarborðið strax því nú
LÆKNANEMINN */i985 - 38. árg.
61