Úrval - 01.04.1965, Blaðsíða 49
41
Unglingurinn kemur akandi heim
á stórskemmdum bíl föður síns og
segir við gamla manninn: „Góðar
fréttir, pabbi! Þú hefur sannarlega
ekki verið að eyða öllum þessum háu
bilatryggingariðgjöldum til einskis.“
Sumum Manhattanbúum er illa við
gort bess fólks, sem komið hefur frá
Texas, Ohio og Indiana til New York,
setzt þar að og komizt vel áfram,
enda finna margir Manhattanbúar til
nokkurs öryggisleysis gagnvart þessu
innrásarliði. James Thurber (sem
var reyndar frá Columbus í Ohiofylki)
var eitt sinn aðalsöguhetjan í einni
slíkri sögu.
Þetta var í hanastélsveizlu einni
í New York. Nokkrir menn frá Ohio-
fylki höfðu komið auga á nokkra
aðra frá því fylki, og menn þessir
höfðu allir safnazt saman úti i horni
og tóku nú að lofa Ohiofylki hástöf-
um.
New Yorkbúi einn, sem var orðinn
dauðþreyttur á þessu grobbi, gekk
að hópnum og sagði: „Nú, sé Ohio
svona stórkostlegt fylki, hvers vegna
voruð þið þá ekki kyrrir þar?“
„Sko,“ svaraði James Thurber, „þar
var samkeppnin allt of hörð fyrir
okkur.“ Earl Wilson
—☆
Afgreiðslustúlka í snyrtivöruverzl-
un i Los Angeles skýrir frá því, að
ung stúlka hafi spurt sig að því, hvort
hún vildi ekki mæla með einhverju
æsandi ilmvatni við sig. Þessu til
skýringar bætti hún við: „Sko, ég verð
að skipta um ilmvatn. Það hefur skap-
azt algert tómlæti hjá piltinum mín-
um fyrir þvi gamla."
Patricia A. Dublin
-—☆
Á jóladagsmorguninn tók systir min
upp jólagjöfina frá manninum sin-
um. Þetta var stærðar kassi. Innan
í honum fann hún spjald, og á því
stóð: „Gleðileg jól og farsælt nýár.“
Síðan vafði hún bréfinu-utan af inni-
haldinu. Innan undir því var annað
bréf og utan á Því spjald, sem á stóð:
„Gleðilega páska.“ Og sagan endur-
tók sig, enn eitt bréf og spjald, sem
á stóð „Til hamingju með afmælið"
.... og enn eitt bréf og spjald, sem
á stóð: „Til mömmu á mæðradag-
inn,“ og að lokum enn eitt bréf og
spjald, sem á stóð: „Til hamingju
með giftingarafmælið." Og innan und-
ir því bréfi gat loks að líta dáfagra
minkaslá og síðasta spjaldið, en á
því stóð: „Elskan, nú ertu búin að
fá allt, sem þú færð þetta árið.“
J. V. Rhodes
—☆
Húsbóndi mannsins míns ákvað að
hætta að reykja. Að nokkrum dögum
liðnum voru taugar hans komnar í
megnasta ólag. Þegar fór að draga
nær hádegi á laugardeginum, hélzt
hann ekki lengur kyrr I vinnunni
og hringdi því heim til konunnar og
sagðist vera að koma heim. Á leiðinni
gekk hann fram hjá auglýsingaglugga
bílasala nokkura og sá þar rándýran
sportbíl. Hann labbaði inn, keypti
bilinn og ók heim í honum. Þegar
hann lagði bílnum fyrir utan húsið
sitt, kom konan hans út og hrópaði:
„Hvað ertu nú með?“
Hann svaraði: „Ja, annað hvort
var það þetta.... eða sígaretta."
Donna Corey