Úrval - 01.04.1965, Blaðsíða 63
BEIRXJT
61
gullklumpum. Stórir, amerískir
bílar teppa umferðina á þröngum
götunum. Yerzlanirnar hafa á boð-
stólum alla liluti, frá tyggigúmmii
til gimsteinum settra höfuðdjásna.
Spilabankinn, sem er einkaeign, er
stœrri en spilabankinn í Monte
Carlo.
Landfræðilega stendur borgin á
landskika, sem skagar út i Mið-
jarðarhafið. Göturnar bugðast upp
af löngum, yndislegum, bylgjóttum
fjörusöndum og tengjast vegum,
sem hlykkjast upp G000 feta liá fjöll
með snævi þöktum tindum. Nýjar
byggingar úr steinsteypu og gleri
eru að ryðja úr vegi görðum og
fornum einbýlishúsum (viilum).
Iiinn hrífandi blær, sem borgin
áður bar, er óðum að hverfa.
Siðustu tíu árin hefur íbúatala
Beirut tvöfaldazt í 600.000. 93 af
hundraði þjóðarinnar eru menntað-
ir, og tekjur á mann — 180 sterl-
ingspund — eru þær hæstu í öllum
Arabalöndunum að Kuwait undan-
skildu. Til ársins 1941 var borgin
undir franskri stjórn. í henni eru
töluð þrjú tungumál aðallega, og
flestar opinberar tilkynningar eru
prentaðar á arabísku, ensku og
frönsku. Hina fjóra háskóla borgar-
innar sækir ungt fólk hvaðanæva
úr Miðausturlöndum.
Beirut er uppgangsborg — út-
þensla hennar er í hámarki. Und-
anfarin tiu ár hafa fasteignir á
beztu stöðuin í borginni hækkað
úr 220 sterlingspundum á fermetra
í 900 sterlingspund. Hótel og íbúð-
ir skipta um hendur, eins og tafl-
menn um reiti. Sögurnar um stóru
vinningana í happadrætti landsins
ganga fjöllunum hærra í borginni.
Á eium stað kom i ljós, að franskt
nunnuklaustur, sem barðist í bökk-
um fjárhagslega, var staðsett á land-
areign, er var £450.000 virði. Pho-
enicia Intercontinental Hotel var
reist árið 1962 fyrir fjárhæð, sem
þá þótti ægileg, 4.200.000 sterlings-
pund. í dag er það níu milljóna
sterlingspunda virði.
FJÁRAFLAMENN
Eins og i Sviss eru bankareikn-
ingar leynilegir, og Beirut hefur
orðið himnaríki fyrir skattsvikara
og fjárgróðamenn margra þjóða. Bei-
rut er einn þeirra staða, þar sem
vextir eru greiddir á ávísanareikn-
inga. Yextirnir eru greiddir vegna
þess, að bankamenn í Lebanon hafa
gróðahyggjuvit, sem gerir þeim
kleift að afla fimm til sex sterlings-
punda, þar sem áður hafðist aðeins
eitt sterlingspund upp úr krafsinu.
Beirut-búar hafa fengið þetta allt
svo að segja í vöggugjöf þar eð
þeir eru eftirkomendur Fönikíu-
manna, kaupsýslumanna fornaldar-
innar, sem fundu upp bókhaldið
og gjaldmiðilinn í nútíma skilningi.
Þeir eru harðvítugir kaupmenn,
kænir og athug'ulir. En eftir að
pappírarnir liafa verið undirritað-
ir, og peningarnir komnir í bank-
ann, verða þeir frjálsmannlegir og
mestu eyðsluseggir í heimi.
Dag einn fór ég til skartgripa-
sala til að kaupa armband handa
konunni minni. Ég þrúkkaði við
skartg'ripasalann í hálfa klukku-
stund, ekki á óþægilegan máta þó,
en hafði ekki í fullu tré við hann.
Þegar ég hafði innt greiðsluna af