Úrval - 01.04.1965, Blaðsíða 65
BEIRVT
63
sækja næturklúbba láta þeir taka
frá fyrir sig 20 borð, og þegar þeir
fara í hótellyftum gefa þeir oft-
sinnis lyftudrengjunum fimm sterl-
ingspund sem þjónustugjald.
Bankamaður einn sagði mér frá
heimsókn til eins sliks Arabahöfð-
ingja i þeim tilgangi að fá hann
til að leggja fé sitt á reikning í
bankanum. Arabahöfðingjanum
þótti leitt, að hann hafði þegar opn-
að reikning í banka — ávísana-
reikning með níu milljón sterlings-
punda innstæðu — en til þess að
gestur hans færi ekki tómhentur
lét hann honum í té bankainnstæðu
sém nam 110.000 sterlingspundum.
Einn Kuwait-búi, sem hafði hjóna-
vígslufagnað fyrir dóttur sína og
ungan mann hennar frá Lebanon,
leysti ættingjana út með skart-
gripagjöfum og gaf öllum gestunum
400 að tölu, konfektkassa úr skíra
gulli. Auk þriggja ibúðarhúsa, fékk
dóttir lians að gjöf tékkhefti með
auðum en undirrituðum ávísunum,
ef vera kynni að ein eða tvær ósk-
ir hennar hefðu ekki verið uppfyllt-
ar.
Þessir herrar eyðimerkurinnar
strá um sig með peningum, að vísu,
en þeir eru slungnir. Drjúgur hluti
fasteigna Beirutl)orgar er í þeirra
höndum, og þar sem andvirði fast-
eigna hefur hækkað óðfluga, hafa
flestir þeirra hagnazt verulega.
Einnig eiga þeir kvikmyndahús,
prentverk, blaðaútgáfufyrirtæki og
banka.
SKOÐANADEIGLA
Samhliða löglegum viðskiptum,
þrifst undirróðursstarfsemi, sam-
særi, njósnir og gagnnjósnir. Er-
lend sendiráð eru mikilvægar hler-
unarstöðvar á þessum slóðum. Lík-
legt er, að allt, sem gerist í Mið-
austurlöndum, sé mönnum kunn-
ugt um i Beirut.
í Beirut eru 42 fréttablöð, fleiri
en í nokkurri annarri borg í heim-
inum. Sendiráðin lesa þau orð fyrir
orð. Þau eru málgögn miðaustur-
landanna, deigla arabískra sjónar-
miða. Nasser les þau í Kairo áður
en hann litur á undirlægju (docile)
blaðakost sinn; reyndar er flogið
með Beirut-blöðin til hans á hverj-
um morgni, svo að hann geti lesið
þau með morgunverðinum.
SKAÐRÆÐIS SENDINGAR
í þessari vin hins frjálsa fram-
taks getur maður hlammað niður
peningum sínum og tekið siðan með
sér gullklump eða tonn af gulli og
jafnvel farið með það út úr land-
inu. Stundum er góðmálmi, keypt-
um í Beirut smyglað inn i Indland,
en þar fæst fyrir hann liátt verð.
Smyglararnir geyma oft á sér um
30 kíló (66 pund) af gulli. Ef þeim
tekst að lauma því inn i landið,
verða þeir 500 sterlingspundum
ríkari á hvert kíló eða hafa 15.000
sterlingspund upp úr hverri ferð.
Ennfremur eru eiturlyfin flutt um
Beirut og smyglað þangað. Eitur-
lyfjaneyzla er ekki mikil i Beirut,
en borgin er þýðingarmikill við-
komustaður á leiðinni til erlendra
markaða. Opium er unnið í Tyrk-
landi og' smyglað yfir landamæri
Sýrlands til Aleppo þar sem unnið
er úr því hrátt morfín (morphine