Úrval - 01.04.1965, Blaðsíða 95
FJÓRIR GEGN ENGLANDSDANKA
93
bankastarfsmannanna slík, að því
verður ekki með orðum lýst. Segja
má, að þeir liafi verið gagnteknir
hryllingi. Allir, ailt frá yfirbanka-
stjóranum til lœgstsetta banka-
mannsins, spurðu sjálfa sig:
„Hvernig i ósköpunum gat þetta
gerzt?“
MENNTUN FJÁRSVIKARA
Ungi Bandaríkjamaðurinn, sem
kallaði sig Frederiik Albert Warr-
en og virtist koma til dyranna eins
og hann var klæddur, var ekki þaul-
vanur fjársvikari með mikla
reynslu að baki. Hann var^aðcins
27 ára að aldri og var alls ekki á
sakaskrá lögreglunnar, þótt hann
hefði vissulega komið nálægt glæp-
um fyrr. Hið raunverulega nafn
hans var Austin Byron Bidwell,
og hann vor sonur matvörukaup-
manns í Suður-Brooklyn í New
Yorkborg.
Fyrsta starf hans hafði verið
hjá heildverzlun, er verzlaði með
sykur. Geysilegt fjör færðist i öll
viðskipti í Bandaríkjunum á ár-
unum eftir Þrælastríðið. New York
var mikil uppgangsborg, og and-
rúmsloftið þar verkaði örvandi á
menn. Það var sem allir væru að
keppast við að verða vellauðugir
i einum hvelli, og Austin varð grip-
inn þessu æði. Hann vildi komast
áfram — strax. Sem starfsmaður
þessarar heildverzlunar komst hann
í snertingu við suma snjöllustu og
hörðustu kaupsýslumennina og
fjármálamennina í Wall Street, og
hann setti vel á sig starfshætti
þeirra í smáu og stóru.
Síðan fór hann að vinna hjá
annarri heildverzlun, og fékk hann
þar 10 dollara á viku, sem þá voru
góð laun. Þar kynntist hann öðr-
um óþolinmóðum ungum manni,
Ed Weeds að nafni. Ed stakk fljót-
lega upp á því við hann, að þeir
stofnuðu fyrirtæki í sameiningu.
Faðir Eds var auðugur, og með
hans hjálp stofnuðu þeir hluta-
félagið E. Weeds & Co. Næstu ár
voru mikil uppgripaár í Wall
Strect. Hlutabréf stigu og stigu, ný
fyrirtæki skutu upp kollinum hvert
af öðru. Allt virtist ganga vel. Þeir
verzluðu með alls konar hlutabréf
og skuldabréf og höfðu nóg að
gera og góðar tekjur.
En þeir voru báðir miklir heims-
menn og höfðu miklu meiri áhuga á
önn næturinnar en hinna virku
daga. Þeir sóttu leikhús, leituðu
eftir kuningsskap við dansmeyjar,
buðu þeim í dýrlega kvöldverði á
fínustu veitingahúsunum, svo sem
Delmonico, og lögðu hátt undir
við lukkuhjólin og spilaborðin i
spilavítunum. í stuttu máli sagt,
þá vanræktu ungu kaupsýslumenn-
irnir fyrirtæki sitt vegna eltingar-
leiks sins við alls kyns lystisemdir.
Þeir höfðu því aldrei næga peninga
hversu háar sem tekjur þeirra voru.
Gg svo fór að lokum, að fyrirtæki
þeirra varð gjaldþrota og þeir töp-
uðu öllu. Ed Weeds yfirgaf í flýti
hið sökkvandi skip og sigldi til
Evrópu.
Á þessum erfiðu krossgötum lifs
sins barst Austin Bidwell freistandi
tilboð úr glæpaheiminum, en íbú-
ar hans vógu og mátu hina von-
lausu aðstöðu Bidwells réttilega.
Þeir voru tíðir gestir við spilaborð