Úrval - 01.04.1965, Síða 54

Úrval - 01.04.1965, Síða 54
52 ÚRVAL hún að tilkynna þetta lækni sínum, jafnvel þótt hún hafi áður haft sam- neyti við slíka sjúklinga. Hann mun geta séð, hvort þörf er á, að nokkr- ar ráðstaí’anir séu gerðar. Með þvi að sprauta „gammaglo- bulini“ í konuna á vissu tímabili má koma í veg fyrir sjúkdóminn. Þessi aðferð hefur þó stundum ekki borið ótvíræðan árangur. En nú, þegar veirurnar hafa nýlega fundizt, er hægt að prófa varnar- mátt „gammaglobulinsins“ og þvi cr hægt að vænta ótvíræðari árang- urs af aðferð þessari i framtíðinni. Gruni konu, að lnin liafi fengið rauða hunda á fyrstu mánuðum meðgöngutímans, verður luin að tilkynna það lækni sinum tafar- laust. Sjúkdómurinn getur verið mjög væg'ur, flekkirnir daufir og litlir eða jafnvel alls engir. En hann mun samt vilja skoða hana, því að ýmsir aðrir kvillar, alls konar upphlaup og flekkir vegna eitrunar, ofnæmis eða annarra veirusjúk- dóma, geta oft og tíðum likzt rauð- um hundum mjög mikið. Og þá get- ur læknirinn oft fullvissað konuna um, að fóstrið sé ekki í neinni hættu. En komist hann að þeirri niðurstöðu, að hún hafi í rauninni fengið rauða hunda á fyrstu mán- uðum meðgöngutímans, þá kemur það til grcina að athuga, hvort til greina komi að binda endi á þungunina með skurðaðgerð, þótt um mikla tregðu lækna gagnvart slikum aðgerðum sé reyndar að ræða. Læknar eru ekki alveg á sama máli í þessu efni. Sumir álita, að möguleikarnir á þvi, að barnið verði alheilbrigt, séu svo miklir, að fóstrinu ætti að verða leyft að ná fullum þroska. Einnig álíta þeir, að framtíðarhorfur barns, sem fæð- ist með líkamsgalla af völdum rauðra hunda, hafi batnað stórkost- lega vegna framfara í skurðlækn- ingum og sjúkdómsgreiningu heyrn- arlausra ungbarna. Um þetta segir einn læknir á þessa leið: „Skylda okkar er að reyna að draga úr lík- amsgöllum barnsins, en ekki að binda endi á líf j)ess.“ Aðrir lækn- ar eru á þeirri skoðun, að kvíði hinnar verðandi móður vegna mögulegrar fæðingar barns með alvarlega likamsgalla kunni að eyði- leggja heilsu hennar. Þcir álíta, að þetta eitt réttlæti það, að endi sé bundinn á þungunina og stofn- að sé til annarrar í hennar stað við heppilegri kringumstæður. Það er engin gullvæg regla til, hvað þetta vandamál snertir. Þetta er eitt af hinum miklu vandamálum læknavísindanna. Um slíkt vandamál væri alls ekki að ræða, ef allar konur væru ó- næmar fyrir rauðum hundum. Ef til vill stuðla ýmsir eðlilegir þætt- ir að j)ví nú á dögum, að svo megi verða. Vaxandi íhúafjöldi horganna eykur möguleika stúlkna á því, að þær fái rauðu hundanna snemma ævinnar, sem geri þær ónæmar fyrir þeim síðar á ævinni. Nú þegar fá flestar telpur þá, þvi að rauðir hundar eru aðallega barnasjúkdóm- ur. Og er skólar stækka og skóla- timi lengist, er líklegt, að færri telpur komist undan sýkingu og að æ færri konur verði þannig næmar fyrir þeim á barneignaaldri.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.