Úrval - 01.07.1968, Page 10
8
ÚRVAL
vera úr titanium málmi. Eftir þeim
mun streyma vatn og hiti, og á þeim
verður að vera þrýstingur.
Settir verða upp nokkrir kjarn-
orkuofnar, en ekki aðeins einn.
Þannig er hægt að taka einn úr
sambandi í einu til þess að gera við
hann eða endurhlaða, án þess að
slíkt þurfi að stöðva framleiðsluna.
Hún þarf þannig aldrei að stöðvast.
Kjarnorkuofnarnir breyta vatni í
gufu, sem snýr bakþrýstingstúr-
bínum og rafölum, sem framleiða
svo rafmagn. Gufan úr bakþrýst-
ingstúrbínunum fer svo í gegnum
hitaskipti, en hún verður fyrir
þrýstingi, 30 pund á ferþumlung
við 121.1 stig á Celsius.
Sjávarvatnið, sem orðið hefur fyr-
ir þessum þrýstingi, er svo hitað
allt upp undir suðumark. Gufu-
þrýstingurinn er lækkaður svolítið
í fyrstu afþrýstingsklefunum, og
þetta hefur þau áhrif, að hluti af
sjónum breytist í gufu. Gufan leit-
ar upp, þangað til hún nær rörum,
sem flytja kaldan sjó. Þá þéttist
gufan, og ferska vatnið fellur niður
í pönnur. Heiti sjórinn, sem hefur
ekki gufað upp á þessu fyrsta stigi
framleiðslunnar, flyzt nú inn í ann-
an afþrýstingsklefa, þar sem þrýst-
ingurinn er lækkaður svolítið á nýj-
an leik, og þetta veldur svo ann-
arri uppgufun og annarri þéttingu.
Hitastig sjávarins lækkar svolítið
eftir hverja þessa skyndiuppgufun.
Þrýstingurinn á honum er minnk-
aður þannig 20 sinnum í röð í 20
afþrýstingsklefum, en að því búnu
er saltlögurinn látinn renna burt.
Við eimingu ferska vatnsins úr
sjónum eykst saltinnihald hans
mjög eða úr 3.5%, sem er eðlilegt
saltinnihald venjulegs sjávarvatns,
upp í 4.5%. Enn vita menn ekki,
hvaða áhrif það kynni að hafa á allt
líf í flotanum, ef saltlegi þessum
yrði veitt út í hann að nýju. Er
þar um að ræða jurtir og dýr, sem
eru allt frá örsmáu svifi upp í
stærstu hvalategundir. Það er ör-
uggt, að slíkt mundi valda breyt-
ingum á lífi því, sem hrærist í fló-
anum í næsta námunda við eim-
ingarstöðina, og ef til vill mundi
þetta reynast mjög hættulegt fyrir
fiskveiðar í flóanum og atvinnulíf
það, sem á þeim byggist.
Margir fiskar geta ekki lifað af
skyndilegar hitabreytingar sjávar,
ef þær nema meiru en 6 til 7.8
stigum á Celsius, en sumar tegund-
ir geta þolað breytingar, þótt þær
nemi allt að 30 stigum, séu þær
ekki snöggar. Vísindamennirnir eru
ekki mjög áhyggjufullir vegna þessa.
Reynist hinn heiti saltlögur verða
hættulegur lífinu í sjónum, verður
honum dælt í tjarnir, þar sem hann
verður látinn kólna, þangað til hann
er kominn niður í venjulegt hita-
stig sjávarins.
Það mun reynast unnt að með-
höndla saltlöginn á kemiskan hátt
og vinna úr honum með hjálp raf-
orku flest þeirra 74 frumefna, sem
fyrir er að finna í höfum jarðar, en
höfin þekja 70.8% af samanlögðu
yfirborði jarðarinnar. Magnesíum-
klórið, sem fyrirfinnst í sjónum
væri t.d. hægt að breyta í magnes-
ium með rafgreiningu og selja það
til iðnaðarþarfa.
Úr sodiumklóríði væri hægt að fá
sodium með hjálp rafmagns. Sodium