Úrval - 01.07.1968, Side 37
HINN LANGI SVEFN
35
hurðir enn á upprunalegum hjör-
um sínum, bjálkar, glug'gasyllur,
hlerar og stigar eru enn á sínum
stað. Á borði í matarstofu einni lá
óskert hneta. Að nítján öldum liðn-
um, er kjötið í hnetunni enn á sín-
um stað. Það, sem furðulegast er,
er þó máske það, að á borði einu
er brauðstykki, sem greinilega hef-
ur verið brotið af aðalbrauðinu á
því augnabliki, sem eldgosið hófst.
Borðdúkurinn hefur brunnið fast-
ur við brauðið,
Um alla borgina bíður hádegis-
verðurinn enn eftir að verða etin.
Það hefur verið hálflokið við að
taka upp úr pakka með glervörum
í búð einni í grennd við Forum og
í búð pottasmiðsins bíður kerta-
stikan og styttan af vínguðinum
enn viðgerðar. í brauðbúðinni eru
bronzpönnurnar enn á leiðinni út
úr ofninum og þar í grennd eru
asnarnir tveir í aktygjum sínum
eilíflega tjóðraðir við myllustein-
ana.
í búð gimsteinakaupmannsins
stendur vefurinn óhaggaður, þræð-
irnir liggja í skyttunum en vefnað-
urinn hefur stöðvazt. Rétt þarna
hjá liggur unglingurinn sjúki í hinu
ríkmannlega rúmi sínu. Yoru for-
eldrar hans fjarverandi og gamla
konan of lasburða til að bera hann
á brott? Þegar leðjan ruddist fram,
og straumurinn hækkaði, hlýtur
hann að hafa beðið í ofvæni eftir
björgun, sem aldrei kom.
Jafnvel pár á veggjum hefur
varðveitzt. Á einum veggnum er
skrifað til minnis, hvað afgreiða
eigi af víni. Á öðrum vegg er orða-
listi, sem einhver skólapiltur hefur
hripað niður sér til minnis. Á ein-
um stað hefur leikmaður í listinni
dregið upp mynd af dádýri og glad-
iator í bardaga. í göngum sem
liggja inn í hús eitt hefur verið
ritað:
„Portumnous elskar Amphia-
anda“.
AFLEITT SLEIFARLAG
Það var margt eftir ógert, þegar
Amedeo Maiuri dó fyrir skömmu.
Nú er næstum lokið við að grafa
upp Pompeii en það er enn langt í
land þar til Herculaneum hefur
verið grafin upp að fullu.
Það hafa verið grafnar upp
nokkrar verzlanir, einkahús og
bygging, sem gæti virzt eins konar
fyrirmynd nútíma sambygginga. —
Einnig hafa verið grafnir þarna upp
nókkrir af merkustu bronzmunum,
sem fundizt hafa til þessa.
Af almennum mannvirkjum hefur
enn ekkert verið grafið upp, nema
baðkarið á torginu. Hluti af höll,
sem virðist hafa verið fimleikahöll
hefur einnig verið grafin upp, en
leikhúsið, hjarta hinna grísku og
rómversku borga er enn undir
jörðu. Það veit heldur enginn enn
hversu stór borg Herculaneum hef-
ur verið. Menn hafa látið sér detta
í hug að hún hafi náð yfir 55 ekr-
ur lands eða svo, en það er bara
ágizkun. Hvaða musterisbyggingar,
skrautgripir, málverk, bókasöfn,
styttur og annað, sem listgildi hef-
ur er enn óuppgrafið? Það leiðir
tíminn í ljós. En því miður, þá má
svo heita, að þessi uppgröftur sé
stöðvaður. ítalska stjórnin segist
alls ekki lengur hafa fjárráð til að