Úrval - 01.07.1968, Page 68
66
ÚRVAL
hafði litlar mætur á ofurstanum.
Hann var að minni hyggju allt of
einstrengingslegur og alsendis ófær
um að tileinka sér sjónarmið ann-
arra. Að lokum lét ég þó tilleiðast
að taka að mér hlutverkið, vegna
tilmæla Sam Spiegel, framleiðanda
myndarinnar.“
„Það var í raun og veru Sam
Spiegel, sem dreif mig í gegnum
hlutverkið og satt að segja, þá var
hann ekki allskostar ánægður með
mig,“ segir Guinness, af þeirri ein-
stöku hógværð og lítillæti, sem er
svo einkennandi fyrir hann.
Eftir leiksigurinn í „Brúnni yfir
Kwai-fljótið“, bárust Guinness fjöldi
tilboða um að leika fleiri undarlega
ofursta, og að lokum lét hann til-
leiðast að taka að sér eitt slíkt hlut-
verk í myndinni „Tunes of Glory“.
En hann harðneitaði að endurtaka á
nokkurn hátt leik sinn í hlutverki
ofurstans í „Brúnni yfir Kwai-fljót-
ið“. Og áhorfendum og gagnrýnend-
um til mikillar undrunar, gjör-
breytti hann rólegum og hljóðlátum
persónuleika sínum í hávaðasaman,
rauðhærðan og úthverfan Skota, al-
gjöra andstæðu innhverfa og þjáða
ofurstans í „Brúnni yfir Kwal-fljót-
ið“.
„Þegar ég hugsa til myndarinnar
„Tunes of Glory“, segir Guinness,
„finnst mér, að enginn sé jafn ólík-
ur sjálfum mér og Jock, hermaður-
inn sem ég lék í þessari mynd.“ En
þetta sýnir glögglega, hve einstæður
leikari hann er, þar sem hann getur
unnið slíkan leiksigur í hlutverki,
sem er algjör andstæða skapgerðar
hans.
ÞOLGÆÐI.
Ein af meginástæðum þess, að
Guinness hefur tekizt að skapa svo
mörg og ólík hlutverk er, hversu
hann býr yfir miklu þolgæði og ein-
beitni. Eftir fyrsta kvikmyndasigur
sinn í myndinni „Great Expections",
þar sem Guinness lék spjátrunginn
Herbert Pocket, bað hann leikstjór-
ann, David Lean, um að fá að leika
hlutverk Fagins í Oliver Twist. En
þar sem Lean gat ekki hugsað sér
að láta þennan spjátrung leika hlut-
verkið, neitaði hann honum um það.
Brá þá Guinness sér inn í búnings-
herbergið og tók að mála á sér and-
litið. Nokkru síðar, er hann hafði
sett á sig gervinef og sítt skegg og
var kominn með lymskulegan svip
betlarans, bað hann Lean að líta inn
til sín. „Það var ekki um að villast,“
sagði Lean, „þarna var Fagin kom-
inn, ljóslifandi,"
Guinness, sem gæddur er góðum
gáfum og hefur vakandi auga fyrir
því, sem gerist í kringum hann, hef-
ur sjálfur engu síður fjölþætta skap-
gerð, fremur en persónurnar, er
hann hefur skapað. Hann er bæði
feiminn, sjálfsöruggur, vingjarnleg-
ur, einlægur, fálátur og fágaður. Og
það eru þessir eiginleikar, sem koma
fram í hlutverkunum, er hann leik-
ur. „Skapgerð okkar allra er mjög
fjölþætt," segir hann. „Ég reyni að
láta það koma fram í því, sem ég
leik.“
Meðan hann vann að upptöku
myndarinnar „The Lavender Hill
Mob“, fannst honum, að í handritinu
væri forsprakkinn gerður að of
vönduðum manni. „Vandaður mað-
ur er ekki aðeins óviðfelldinn,“ segir