Úrval - 01.07.1968, Page 71
ALEC GUINNESS
69
um ómetanlega lærdómsríkt, Hann
rannsakaði fólkið, horfði á það
skoða í glugga verzlananna, eða
hvernig það gekk yfir göturnar.
Og í huga hans safnaðist fjölþætt
reynsla af útliti og hegðan mann-
fólksins. Guinness, er notaði fjöl-
breytta lífsreynslu sína sem uppi-
stöðu í túlkun hlutverkanna, komst
að raun um, að þar sem hann væri
meðalmaður á hæð, gæti hann bæði
virzt hærri eða lægri, eftir því sem
hann vildi að fram kæmi í leikn-
um. Og á fölu, einlægu andlitinu
gat hann birt allar þær kenndir og
hugdrif, er hann vildi.
Feimnin, sem löngum gerði Guin-
ness erfitt uppdráttar, varð honum,
þegar fram liðu stundir, til mikils
gagns. í stað þess að reyna að aug-
lýsa sjálfan sig, líkt og flestir leik-
arar, glæsilegir í útliti og snoppu-
fríðir gera, gleymdi hann sjálfum
sér og rann saman við hlutverkið,
sem hann lék.
Til allrar hamingju kom leikstjór-
inn John Gielgud auga á hæfileika
Guinness, áður en hann tók að þjást
alvarlega af næringarskorti. Hann
hafði séð hann leika í skólaleikriti
og bauð honum hlutverk í næsta
leikriti, er hann stjórnaði. Áður en
það varð, hittust þeir eitt sinn af
tilviljun. Brá þá Gielgud svo að sjá,
live Guinness var horaður og illa á
sig kominn, að hann bauðst til að
gefa honum 20 pund. En Guinness
afþakkaði með stolti fátæklingsins.
,,Það var mjög heimskulegt af mér,“
sagði hann síðar. Árið 1934 lék
Guinness undir stjórn Gielgud hlut-
verk Osric hins unga, taugaveiklaða
og þóttafulla hirðmanns, í Hamlet.
Hann hlaut mikið lof fyrir leik sinn
og hefur aldrei verið atvinnulaus
síðan.
Næstu hlutverk, sem hann lék,
sýndu greinilega hve hæfiléikar
hans voru frábærlega miklir, — I
myndinni „Hotel Paradiso“ iék
hann lítinn, væskislegan mann, sem
reynir að véla nágrannakonu sína.
Ekki tókst þó betur til en svo, að
allt endaði að lokum með ósköp-
um. Það er mjög auðvelt að ofleika
gamanleik af þessu tagi. En slíkt
gerir Guinness ekki.
„í þessum gamanhlutverkum má
aldrei koma fram, að þú leikir ekki
af fyllstu alvöru. Smá bending á
röngum stað getur eyðilagt allan
leikinn. Skopinu verður að fylgja
viss alvara,“ segir Guinness.
Skömmu áður lék hann hlutverk
Markúsar Árelíusar í myndinni
„Hnignun rómverska keisaradæmis-
ins“, en það hlutverk gat vart ver-
ið ólíkar því, er hann lék í „Hotel
Paradiso". „Þú leikur Árelíus mjög
furðulega,“ sögðu jafnvel vinir hans.
„Ég hafði mjög mikla ánægju af
því að vinna að upptöku þessarar
myndar,“ sagði Guinness, „og ekki
sízt fyrir þá sök, að Soffía Loren
lék á móti mér. Einhverra hluta
vegna var hún dálítið taugaóstyrk,
þegar við hittumst í fyrsta skipti.
En er ég sagði henni, að í styrjöld-
inni, þegar ég var -liðþjálfi á inn-
rásarpramma við Anizo hefðum við
verið vanir að gefa börnunum, sem
stóðu á hafnarbryggjunni skammt
fyrir norðan Napolí súkkulaði, sagði
hún: „É'g man það. Ég var eitt þess-
ara barna! Eftir það gekk samstarf
okkar prýðilega."