Úrval - 01.07.1968, Blaðsíða 89
KRISTMYNDIR í TRÉ
87
Listasafninu í Perm, borg í Úral-
fjöllum, var komið upp árið
1922. Safn þetta má telja í
fremstu röð meðal listasafna í
smærri borgum, ef ekki fremst.
Það sem gerir safnið svona mark-
vert, eru einkum tréskurðarmyndir
frá seytjándu og átjándu öld.
Þær eru skornar í birki, linditré
og furu, og enginn þekkir nöfn þess-
ara listamanna, sem létu eftir sig
slíkt safn af myndum af Kristi, svo
óendanlega fjölþætt og svipmikið.
Þeim hefur verið safnað saman úr
kirkjum og kapellum í smáborgum
og þorpum í þessu landsvæði, og
oftast bera myndirnar nafn staðar-
ins sem þær eru frá.
Þegar ég kom fyrst inn í safna-
hús þetta, varð fyrir mér mynd sem
kennd er við Solikamsk. Þetta er
krossfestingarmynd, úr kirkjugarðs-
kapellu borgar, sem heitir þessu
nafni. Beinhoraðar hendurnar eru
teygðar upp á við, höfuðið, grannt
og mjótt, drjúpir og er hulið til
hálfs af síðu hári, svörtu, líkaminn
allur óeðlilega langur og mjór,
(sýnilega gert með vilja) og hnén
beygð. Myndin er öll annarleg og
þó svipmikil.
Næst skoðaði ég krossfestingar-
mynd, kennda við Ilyinsky. Hún er
öll dekkri og andlitsfallið austrænt,
há kinnbein og digurt nef. Augun
eru lokuð, og telja má hvert rif i
þessu horaða mannsbrjósti. Allt
andar þetta sorg og þjáningu.
Krossfestingarmynd, kennd við
Rubezh, er sögð hafa sézt á floti í
ánni Kama árið 1755 og borizt á
land við bakka árinnar þar scm(i
hun beygir við beint á inóti Rubezh-
Mynd úr kirkjunni í Ust-Kosva.
Krossinn frá Rubezh.