Úrval - 01.07.1968, Qupperneq 98
96
ÚRVAL
smám saman slíkan skilning, siíkt
innsæi. Eiginmaður einn kvartar yf-
ir því, að konan hans virðist alger-
lega ófær um að skynja, hvenær
hann hefur átt mjög erfiðan dag í
vinnunni. „Maður gæti haldið, að
hún ætti að geta séð þetta nú orð-
ið,“ sagði hann, „vegna þess að ég
dyl það ekki, í hvernig skapi ég er
hverju sinni. En hún heldur bara
áfram að skýra mér frá sínum vand-
ræðum og erfiðleikum eða romsa
upp úr sér heilli runu af ýmsum
verkum, sem hún ætlast til, að ég
framkvæmi þá um kvöldið. Svo er
hún alveg steinhissa, ef ég rýk upp,“
Þennan skort á skilningi, hvað
snertir tilfinningar makans, mætti
kannske rekja til skorts á sameigin-
legri reynslu hjónanna. Konur hafa
t.d. tilhneigingu til þess að sýna
eiginmönnum sínum meiri skilning
í ýmsum fjölskylduvandamálum og
ýmsum vandamálum samfélagslegs
eðlis, en hjónin hafa einmitt mikla
sameiginlega reynslu á þeim svið-
um. En þegar um er að ræða vanda-
mál, sem snertir starf hans, þá kann
einkaritarinn hans að vera miklu
færari um að geta sér til um skap
hans og viðbrögð en sjálf eiginkon-
an.
ÞAÐ, SEM SKILUR Á MILLI
Staðreyndir nútímalífs geta oft
verið orsök misskilnings milli hjóna.
Næsta kynslóð á undan okkur lifði
við aðrar aðstæður. Þar höfðu hjón-
in hvort um sig sín ákveðnu verk,
sem þau áttu að leysa af .hendi, og
mörkin milli skylduverka og sérrétt-
inda karla og kvenna voru mjög
skörp. En nú geta þessi hlutverk
breytzt, eftir því sern aðstæðurnar
breytast eða eftir því sem einstak-
lingarnir æskja þess sjálfir.
Ungar eiginkonur sjá fyrir eigin-
mönnum sínum, meðan þeir ljúka
námi. Eiginmenn sjá um börnin,
meðan konan er að heiman. Eigin-
kona, sem er dugleg í reikningx, sér
kannske um fjármál heimilisins í
stað mannsins. Eiginmaður getur
álitið sig stórkostlegan matsvein, án
þess að slíkt geri hann nokkuð kven-
legri að áiiti annarra. Hin gömlu,
skörpu mörk milli hegðunar og
stöðu karla og kvenna eru að mást
út eða hafa horfið.
En fjölbreytni hlutverkanna og
aðstæðnanna í nútímalífi gerir það
einmitt oft að verkum, að skiln-
ingurinn milli makanna á oft erfitt
uppdráttar. Eiginmaðurinn sér
kannske eiginkonu sína í allt öðru
hlutverki en hún sér sjálfa sig í.
Honum er kannske vísað á bug,
þegar hann nálgast hana kynferðis-
lega, vegna þess að það verður mik-
ill annadag'ur hjá henni á skrifstof-
unni á morgun og hún þarfnast
hvíldar í nótt. Hann hugsaði um
hana í hlutverki eiginkonu, á sama
augnabliki er hún hugsaði um sig
sjálfa í hlutverki launþega. Nú
gremst henni, að hann skilur alls
ekki þreytu , hennar, og honum
gremst, að hún hefur vísað honum
á bug kynferðislega.
Konum er kannske fremur gefið
tilfinningalegt innsæi en körlum.
Það má kalla slíkt innlifunarhæfi-
leika eða innsæi eða einhverju öðru
nafni, en allar líkur benda til þess,
að konur séu færari en karlar um
að skynja ýmis merki, sem gefin eru