Úrval - 01.07.1968, Síða 110
108
ÚRVAL
veggurinn hrundi og flóðið brauzt
gegnum stífluna. Wallis leit ánægð-
ur á sprunguna, sem var um 15 fet
á lengd og 12 fet á þykkt.
I huga Wallis fékk sprengjan á
sig ákveðna mynd, hún átti að vera
kúlulaga, og hoppa á yfirborði
vatnsins, eins og fallbyssukúlur
gömlu fallbyssubáta sjóhersins
gerðu fyrir mörgum öldum. Sex fyr-
irmyndir voru gerðar til tilrauna.
Wellington flugvél var breytt sér-
staklega til þess að geta borið þessa
nýju sprengju. Sprengjudyrnar voru
teknar af, og armar voru festir á
flugvélaskrokkinn til að styðja við
hliðar sprengjunnar, sem voru ör-
lítið flattar.
Vökvaknúinn mótor sneri sprengj-
unni, og þegar hún var látin falla,
sneri hann henni mjög hratt öfugt
við stefnu flugvélarinnar; þetta jók
fjölda hoppanna þar sem sprengjan
var einnig látin hreyfast upp á við
um leið og hún fór áfram (og svo
voru tilraunirnar vel heppnaðar, að
Wallis braut í ógáti glugga, sem
voru hátt á vegg í Eðlisfræðistofn-
uninni í Teddington, þegar hann var
að gera tilraunir með kúlu í stórri
tunnu). Ennfremur myndi þessi
rangsælis snúningur valda því, að
sprengjan, um leið og hún hitti
stífluvegginn efst, mundi hoppa til
baka nokkra metra og stefna henn-
ar myndi breytast, hún myndi falla
niður í vatnið meðfram innri stíflu-
veggnum niður á hið rétta 30 feta
dýpi.
4. desember 1942 flaug Mutt
Summers yfirreynsluflugmaður Vic-
kers og góður vinur Wallis, í
breyttri Wellington flugvél frá
Weybridge með fyrstu fjórar
sprengjurnar. Wallis var fremst í
vélinni sem sprengjumiðari, og til-
gangurinn var að reyna sprengj-
urnar við ströndina í Dorset. Þar
sem hinar undarlegu sprengjur
hengu neðan á vélinni breyttist út-
lit hennar svo mjög, að fallbyssu-
bátarnir við Portland hófu skotár-
ás á hana, og var ekki laust við að
Wallis fyndist þvermóðska yfirvald-
anna, vegna tilraunanna ganga full
langt í það skipti.
Eftir að fyrsta sprengjan féll, sá
hann að sprengjuskelin þurfti að
vera sterkari. Eftir að hún hafði
verið styrkt, tókust sprengingarnar
mjög vel, en kvikmynd var tekin
af þeim á jörðu, en Summers forð-
aðist að koma of nálægt Portland.
2. febrúar var Wallis loks leyft
að útbúa sprengjur í fullri stærð,
Það var rétt nógur tími til þess að
gera árás á þýzku stíflurnar í tæka
tíð, stífluvötnin voru full í maí, og
þá var hentugastur tími til árás-
anna.
Wallis hafði í raun og veru lok-
ið undirbúningi sínum þegar hon-
um var fyrirskipað að hætta. Ein-
beittur fór hann á fund Summers
og krafðist þess að fá að tala við
Sir Arthur Harris flugmarskálk og
yfirmann alls sprengjuhernaðar úr
lofti. Summers þekkti Harris nógu
vel til að vera dús við hann, en það
þorðu fáir að vera. Um leið og
Wallis gekk inn á skrifstofu Harr-
is, sagði sá með þrumuraust: „Hvað
viljið þér? Líf drengjanna minna
eru alltof dýrmæt til þess að þeim
sé fórnað fyrir einhver kjánastrik“.
Þessar móttökur ollu Wallis mikl-