Úrval - 01.07.1968, Qupperneq 117
STÍFLUBRJÓTARNIR
115
Beaverbrooks, og fór síðan í reynslu-
ferðir yfir flugveiHnum. Allt tókst
eins og bezt var á kosið. Þetta var
einnig reynt á hinum flugvélunum
yfir Derwent vatni og flugmennirn-
ir komust að því, að þeir' gátu flog-
ið mjög nálægt hver öðrum slysa-
laust. Þetta var öllum léttir en ekki
var hægt að segja að menn væru
frá sér numdir. Þeir vissu sem var,
að illa myndi ganga að tryggja
hverja þá flugvél, er flygi í 60 feta
hæð að víggirtu skotmarki óvinar-
ins.
29, apríl var önnur sprengja reynd
í hryssingslegu veðri í sjónum hjá
Reculver rétt hjá Herneflóa. Wall-
is fylgdist áhyggjufullur með ferð-
um Lancastervélarinnar frá sand-
hólunum á ströndinni, er hún
steypti sér niður að tveimur stál-
turnum, sem voru með líku sniði
og turnarnir á þýzku stíflunum.
Vélin lækkaði flugið niður í 60 feta
hæð og sívala sprengjan fleytti kerl-
ingar án þess að brotna og hæfði
beint í mark.
FERÐIN HAFIN
Snemma í maí vissu allir í 617.
herdeildinni, að eitthvað mikið var
í aðsigi. Breyttar Lancastervélar
komu til Scampton flugvallar, og
ekki voru breytingarnar til fegurð-
arauka. Sprengjudyrnar voru horfn-
ar, einnig miðturnarnir og hlutar
af brynverjunum. Allskyns aðskota-
hlutir sáust neðan á vélinni.
En á meðan áhafnirnar á Scamp-
ton flugvelli gláptu á þessa skrýtnu
aðskotahluti urðu yfirforingjar ár-
ásahernaðarins skelfingu lostnir.
Þrjá síðustu daga höfðu torkenni-
legir uppslættir sézt á Möhn stíflu-
garðinum á myndum, sem Mosquito
njósnaflugvélin kom með. Þetta
virtust litlir svartir rétthyrningar,
og sérfræðingarnir brutu heilann
án afláts um þetta. Aðeins eitt svar
virtist hugsanlegt — þetta voru ný
byssustæði. Einhver hafði kjaftað
frá.
13. maí kom vörubílalest til
Scampton flugvallar með hina nýju
sprengju Wallis. Micky Martin,
grannvaxinn og laglegur Ástralíu-
búi, með glettnisglampa í augum og
gífurlega stórt yfirvaraskegg, horfði
á sprengjuverðina setja eina af
sprengjunum inn í ílugvél hans
„Popsy“. Hálfri stundu eftir að
sprengjan var komin á sinn stað
var hann ásamt áhöfn sinni kom-
inn um borð í vélina. Einn af á-
höfninni ýtti óvart á fallhnappinn
og hin risastóra sprengja féll til
jarðar. Hún féll í gegnum steypt
gólfið og lét fara vel um sig í mold-
inni þar fyrir neðan. Sprengjumað-
urinn öskraði: „Komið ykkur út í
hvelli, hún springur eftir eina mín-
útu“!
Mennirnir ruddust út, hver um
annan þveran, Martin hoppaði upp
í bíl, sem var þar nálægt og brun-
aði af stað til þess að finna yfir-
sprengivörðinn. Hann steig bensir,-
ið í botn, en sór að maður á hlaupa-
hjóli hafi farið fram hjá sér. Mart-
in stóð á öndinni, þegar hann sagði
verðinum tíðindin, en sá keyrði í
rólegheitum að yfirgefinni vél-
inni. Mörg spennt ' andlit fylgd-
ust með honum úr loft-
varnarbyrgjum í nokkur hundruð
metra fjarlægð, og komu út léttir