Úrval - 01.07.1968, Síða 120
118
ÚRVAL
marga flugtíma að baki og hann
sjálfur. Mennirnir lágu á grasinu
við skýlin, reyktu, töluðu saman
og biðu.
f þessu kom Gibson akandi, og
fór beint til Powells yfirforingja
aganefndarinnar og trúnaðarmanns
herdeildarinnar. „PowelP1, sagði
hann, „gerið mér þann greiða að
grafa Nigger fyrir utan skrifstofu-
dyr mínar á miðnætti í nótt“.
„Að sjálfsögðu, herra minn“,
svaraði Powell hálfundrandi yfir
því að slík beiðni skyldi koma frá
jafn harðsvíruðum flugstjóra og
Gibson. Það sem Gibson sagði hon-
um ekki var, að um líkt leyti bjóst
hann við að vera í um 60 feta hæð
yfir Þýzkalandi, og honum datt í
hug, að ef til vill yrðu þeir sam-
ferða í jörðina, Nigger og hann
sjálfur.
Gibson klæjaði í fingurgómana
eftir því að komast af stað, og hann
vissi að svipað var ástatt um þá
hina. Allt myndi verða í lagi um
leið og þeir væru komnir í loftið,
Þannig var það alltaf. Klukkan
20.50 sagði hann: „Jæja, klukkan
segir að brottfarartíminn sé kom-
inn“.
Mennirnir hreyfðu sig kæruleys-
islega. Á mínútunni 21.10 kviknaði
rautt ljós í vél Gibsons, „George“,
og var það merki þess að McCarthy
átti að leggja af stað með hópinn,
sem fór nyrðri leiðina. Sú leið var
lengri og fóru þeir því fyrr af
stað. Klukkan 21.25 fóru hreyflar
„George" af stað. Ólánleg í laginu
með sinn fyrirferðamikla farm ók
hún suður eftir flugbrautinni og
sneri sér síðan við. Martin í vél-
inni „Popsy“ var vinstra megin við
hann og Hopgood í vélinni „Moth-
er“ var hægra megin.
„Tilbúnir til flugtaks“, sagði Gib-
son. Hann hallaði sér fram og veif-
aði til Martins og Hopgoods, sem
svöruðu kveðju hans. Þá sleppti
hann bremsunum og vélin fór af
stað. Níu Lancastervélar fóru fyrst
og um borð í hverri þeirra var
fimm tonna sprengja og fimm tonn
af bensíni. Vélarnar juku hraðann
og i 200 feta hæð breyttu þær um
stefnu. Að baki skein sólin og varp-
aði geislum sínum á vorgróðurinn
á ökrunum. Fyrir framan þá glotti
tunglið.
ÞEIR FYRSTU FALLA
f stjórnklefa „George" sagði Spaf-
ford: „Þarna er hafið framundan",
og mínútu seinna flugu þeir þar
yfir. England hvarf að baki, Gib-
son lækkaði flugið niður í 50 fet.
Martin og Hopgood, sitt hvorum
megin við hann, gerðu slíkt hið
sama. Með þessu móti kæmu þeir
seinna fram á ratsjá Þjóðverja.
Þetta dugði þeim þó ekki lengi, í
um 20 mílna fjarlægð frá strönd
Hollands sæjust þeir á skermunum,
og þá yrðu sendar út skipanir til
loftvarnastöðvanna og sprengju-
flugvélaherdeildanna.
í flugumsjónarherbergi fimmtu
deildar í Grantham sat aðalmerkja-
sérfræðingurinn við símatæki, sem
tengt var loftskeytatæki. Á þenn-
an hátt myndu skilaboðin berast
með Morse-merkjum, því flugvél-
arnar voru of langt í burtu og i of
lítilli hæð til þess að hægt væri að
hafa tal af þeim. Við hlið hans voru