Úrval - 01.09.1974, Page 11

Úrval - 01.09.1974, Page 11
ÉG ER TUNGA JÓNS 9 þannig eru blæbrigði bragðs einnig óteljandi eða svo þúsundum skipt- ir. En rannsakendurnir höfðu rangt fyrir sér. Bragðlaukar eru ekki bundnir mér einni heldur dreifðir um munnhol Jóns. Frumbragðlauk ar í beisku og súru eru nálægt jöðrum gómsins við munnþekjuna. Ef Jón léti tannkrem þekja góm- inn, mundi hann finna bragðið truflast eða hverfa. Appelsínubúð- ingur yrði naumast sætur, og te eða kaffi mundi varla verða ilm- andi, gott og hressandi. Flestir bragðlaukar í sætu og súru eru á tungunni, en samt eru nokkrir annars staðar, sérstaklega ofan til í kverkunum. Fæðan verður að verða fljótandi, til þess að finna megi eðlilegt bragð. Þetta er auðvelt að finna með rjóma ís. Hann er bragðlaus, þangað til hann bráðnar. En sé hann orðinn fljótandi, fellur hann að móttökur- um bragðlaukanna. Á augabragði berast rafefnaboð eins og straumur með höfuðtaugum smekksins til heilans. Samt eru önnur tæki, sem tilheyra súru, beisku og söltu. Eins og litir eru blandaðir á plötu, blandast boðin á leiðinni, og heilinn kveður upp sinn hæstaréttar dóm: „ísinn er ágætur“. Einu sinni var álitið, að öll fæða bragðaðist öllum eins. Þetta er nú skritið, þegar betur er athugað — allir vita að heyrn og sjón er afar mismunandi. Nú er þá einnig við- urkennt, hve margs konar mismun bragð getur haft. Sumum kann að finnast spínat mesta sælgæti. Öðr- um finnst það ógeðslegt. Svipað er að segja um aðrar fæðutegundir. Nokkur hrein efnasambönd virðast valda mismunandi viðbrögðum í bragðskynjun. Sódaduft verður sumum sætt, öðrum beiskt, salt eða bragðlaust. Það er þess vegna úmögulegt að fullyrða hvað öðrum finnst um ost- inn, sem þér finnst beztur. Tilgát- ur eru um það, að bragð fylgi ákveðnum erfðum og venjum. Samt hafa tungur mjög mismun- andi bragðhæfni og aðlögun. Jóni finnst nú ýmislegt ágætt, sem hann gat ekki þolað í fyrstu. Fá börn vilja áfir. En fullorðnum finnst þær frekar ágætar. Það tók mig langan tíma að venjast kryddi og sterkum osti. Nú finnst mér hvort tveggja frábært á bragðið. Og læri ég eitt- hvert bragð, þá gleymist það al- drei. Það er sérstætt með bragð- skynjun. Ég held mér líka ágæt- lega með aldrinum. Heyrn og sjón dvína, en bragð- skynjan Jóns breytist lítið, bauna- súpa bragðast honum á sama hátt á níræðisafmælinu, eins og þegar hann var tíu ára. Eins og ég ymti að í byrjun, próf ar Jón mig við og við. Hann telur húð á tungunni stafa af slæmri meltingu eða harðlífi. En svo þarf ekki að vera. Margt fólk með hægða tregðu og slæma meltingu hefur al- veg hreina tungu, og tungan í mörg um, sem aldrei fá meltingartrufl- anir og harðlífi, getur haft græn- hvíta skán. Skánin er sem sé að mestu leyti fæðuleifar og gamlar, dauðar frum ur, sem hefur dagað uppi á yfir- borði mínu, hafa borað sér inn í
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.