Úrval - 01.09.1974, Side 20
18
ÚRVAL
Myrkrið var að skella á og loftið
mettaðist af reyk frá ósandi olíu-
lömpum og brennandi rusli.
Úr einu tjaldinu hljómaði reiði-
leg kvenrödd. ,,Þú ætlar þó ekki
í svefnpokann með þessar skítugu
lappir?"
Svefndrukkin barnsrödd svaraði:
„Hvernig kemst ég ofan í pokann
án þeirra, mamma?“
Maður, sem var á leið til litla
hússins með hjartanu á hurðinni,
hrasaði í flýtinum um tjaldstag. í
næstu tjöldum hækkuðu mæðurn-
ar raddirnar til að yfirgnæfa kjarn
miklar lýsingar hans á tjaldbúða-
lífi.
Kyrrð færðist yfir, en stóð
skamma stund eða þar til lítil
stúlka steig á slímugan frosk, sem
bræður hennar höfðu laumað ofan
í svefnpokann hennar.
Svo færðist aftur kyrrð yfir
tjaldbúðirnar. Svartþröstur fann
hjá sér köllun til að hefja kvöld-
sönginn sinn, sem hljómaði eitt-
hvað á þessa leið: „Hver eruð þið?
Hver eruð þið? Hver eruð þið?“
Gegnum tjaldvegg svaraði þreytt
karlmannsrödd. „Hver við erum?
Hópur af fíflum — það er allt og
sumt.“
En stundu síðar, þegar hann sat
við varðeldinn með konunni sinni
og nokkrum öðrum tjaldbúum,
meðan börnin sváfu vært og
dreymdi um allt það skemmtilega,
sem gerast myndi á morgun, skipti
hann um skoðun. Og næstu spurn-
ingu svartþrastarins svaraði hann
þannig: „Við erum tjaldbúar, sem
njóta lífsins, það er allt og sumt.“
☆
Ég hef fengið stórkostlega hugmynd. Ég ætla að stofna katta-
bú með 100.000 köttum. Hver köttur eignast að meðaltali 12 kett-
linga á ári. Kattaskinn seljasi fyrir einn dollar stykkið. Hundrað
manns geta flegið 5000 ketti á dag, svo umsetningin á dag verður
um 5 þús. dollarar. En hvað fá nú kettirnir að éta? Ég stofna rottu-
bú við hliðina með milljón rottum, en rotturnar fjölga sér tólf
sinnum hraðar en kettirnir. Svo kettirnir geta fengið fjórar rottur
á dag hver að meðaltali. En með hverju á þá að fóðra rotturnar?
Ég gef þeim auðvitað kattahræin, þegar búið er að flá þau. Sjáið
þið ekki, hvað þetta er snjallt? Ég fóðra kettina með rottum og
rotturnar með köttum og fæ, sem sagt, kattaskinnin alveg ókeypis!
C.B.