Úrval - 01.09.1974, Page 26
24
ÚRVAL
með sjálfum mér, en ég fann alls
ekki nafnið.
Meðan hermaðurinn talaði, varð
hershöfðinginn sífellt rjóðari og
rjóðari. Ég hafði ekki hugmynd
um, hvað hermaðurinn var að
segja honum, en ég hef aldrei séð
mann verða eins reiðan og hers-
höfðingjann. Hann starði á mig
með augum sem voru að springa
út úr tóftunum, svo tók hann tafl-
borðið og lét það varlega upp á
litla borðið við gluggann, áður en
hann reis á fætur.
„Þá er ég búinn að vera,“ hugs-
aði ég. „Og ég, sem var að því
kominn að . . .“
Hershöfðinginn lagði handlegg-
inn þvert yfir bringuna, eins og
hann ætlaði að draga sverð úr
slíðrum. í næstu andrá flaug hand
leggurinn í boga upp á við, svo
handarbakið small á munni her-
mannsins. Maðurinn þeyttist aftur
á bak út úr klefanum og lenti með
brestum á veggnum andspænis dyr
unum, frammi á ganginum.
Hershöfðinginn sparkaði hurð-
inni svo harkalega aftur, að ég
hélt að rúðan í henni myndi brotna.
Hann tautaði eitthvað fyrir munni
sér, meðan hann settist, og hann
var móður. Svo færði hann tafl
borðið aftur á sinn stað og virti
fyrir sér stöðuna.
„Davai, Magyar!“ sagði hann.
Mig langaði mest til að garga
og góla af gleði. Enginn mundi
voga að trufla okkur framar —
það var ég viss um.
Þegar lestin lagði enn á ný af
stað, gagntók léttirinn mig og hin
ógnþrungna spenna vék frá mér,
svo mér varð á að brosa.
Hershöfðinginn leit upp frá tafl-
borðinu og brosti á móti. Hann
sagði eitthvað við unga manninn,
sem þýddi fyrir mig: „Hershöfð-
inginn spyr, hvort þér getið hugs-
að yður að tefla við hann einhvern
tíma þegar þið eruð komnir til Vín-
ar. Hvar getur hann hitt yðut'?“
Eins og ósjálfrátt nefndi ég eitt
af þekktustu hótelum borgarinnar.
„Og nafn yðar?“ spurði ungi of-
urstinn.
Nú, þegar hin þrúgandi, kvelj-
andi skelfing var liðin hjá, hikaði
ég aðeins eitt andartak. Ég skildi
ekki, hvernig ég hafði nokkru sinni
gleymt þessum tveimur einföldu
orðum.
Ég sagði hátt og skýrt: „Ég heiti
Oscar Zinner."
☆
Eftir því, sem maður eldist, verður manni ljósara, að ekkert
hefur breytzt. Það eru bara komnir nýir siðir.
Noel Coward.