Úrval - 01.09.1974, Blaðsíða 57
BAKVERKUR . . .
55
bílsetur. Það kemur í veg fyrir
eðlilega hreyfingu og gang, sem
eru dýrmætar hræringar til að
hindra bakverk, og dæmir fólk til
kyrrstöðu og hreyfingarleysis í hin
um óheillavænlegustu stellingum,
oft í stoppuðum stólum, sem veita
bakinu engan stuðning.
Eins getur bakverkur stafað af
of miklum líkamsþunga. Bólgur
margra tegunda geta einnig orsak-
að bakverk, fyrir utan allar teg-
undir gigtsjúkdóma. Dr. John Sar-
no í New York, sem mikið hefur
athugað þessa kvilla, telur geðs-
hræringar — áhyggjur, æsing og
þunglyndi — orsaka bakverk í 80
af hundraði sjúklinga, með þessa
vanlíðan.
En hver er þá helzta lækningin,
þegar orsakirnar eru svona marg-
ar?
Hreyfing.
Bakið kveinkar sér bókstaflega af
því, að það fær ekki tækifæri til
umsvifa, og vöðvarnir ná ekki að
þróast á eðlilegan hátt. Hreyfingar
á sem fjölbreyttastan hátt eru því
helzta ráðið gegn þessari plágu.
f fjölda alvarlegra tilvika, meðal
annars þeirra, sem orsakast af
gömlum eða nýjum meiðslum, og
til þeirra tiltölulega fáu, sem þarfn
ast skurðaðgerða, eru vöðvaþrosk-
andi hreyfingar eina ráðið til end-
urhæfingar bakinu, svo að eymslin
hverfi og komi ekki aftur.
En það verður að endurtaka þess
ar hreyfingar og halda þeim áfram
dag' eftir dag og ár eftir ár.
Ofurlítil lexía í líffærafræði get-
ur aukið skilning á þessu.
Náttúran hefur veitt mannskepn-
unni 33 aðskilda hryggjarliði, sem
ná frá hauskúpu þangað, sem róf-
an hefst á flestum öðrum spendýr-
um.
Sé röntgengeislum beint að
hryggsúlunni, kemur í ljós S-
mynduð bugða, til þess að skapa
eðlilegt jafnvægi í burðarþoli lík-
amans. Væri hryggsúlan sett lóð-
rétt upp og rétt úr bugðunni,
mundi hún aðeins hafa 1/16 þess
styrkleika, sem hún er annars
gædd með bugðum sínum. Séu
beygjur teknar áfram, aftur á bak
eða til hliða, hreyfist hver hryggj-
arliður í nákvæmu hlutfalli við þá
næstu fyrir ofan eða neðan.
En til þess að tryggja þennan
samleik hryggjarliðanna eru brjósk
plötur eða hlífar milli liðanna, sem
hafa verið nefndar „smeygjur“ eða
diskar. En þetta er þó ekki svo í
raun og veru, þeim er ekki smeygt
á milli, og þetta eru fremur orðin
ein. Þetta eru hlutar af sjálfum
hryggjarliðunum.
Ytra borð þessara brjósk- eða
beinflata er hringur úr seigu efni,
sem er bundinn sjálfum hryggjar-
liðnum með þunnri brjóskhúð. Að-
alhluti þessa hlífðarlaga er úr seigu
efni. Og í ungu fólki er það 88
prósent vatn. En með aldrinum
harðnar þetta niður í 70 prósent og
missir mikið af sveigjanleika og
samþjöppunarhæfni.
Þetta gerir frumatriðin í þeirri
óheillaþróun, sem hefur verið nefnd
brjósklos og kölkun og fleiri slíkum
sjúkdómsheitum. Slík röskun þessa
lags utan á hryggjarliðaflötunum
eða milli þeirra getur svo þrýst á
taugahnoðu og valdið voðalegum