Úrval - 01.09.1974, Side 62

Úrval - 01.09.1974, Side 62
60 ÚRVAL lauk á leið þeirra yfir hafið til Frakklands. Að lokinni herþjónustu fór hann til New York til að vinna sér inn peninga, svo að þau Zelda gætu gifzt og stofnað heimili. Hann tók auglýst starf, og helzta lánið var að fá vinnu viS fatahreinsun í Muscatine í Iowa. „We keep you clean in Muscatine11, var ort og sungið. Hann skrifaði smásögur á kvöldin og nóttunni, hvorki meira né minna en 19 á þriggja \mánaða tíma — og eldheit bréf til Zeldu. En hann fékk þær allar endursend ar jafnharðan frá útgefendum, og litla leiguherbergið hans var að fyllast af meira en 100 möppum með endursendum handritum. Vonsvikinn sagði hann upp starfi sínu og fór heim til St. Paul alls- laus til að ljúka þar við sögu, sem hann hafði unnið að, síðan hann var í skóla. En þegar hún — Hérna megin í Paradís — kom út árið 1920 sló hún strax í gegn. Og að- eins 23 ára að aldri var hann val- inn Jass-kóngur aldarinnar, og allt í einu kepptust tímarit um að fá sögur hans til birtingar. DRAUMURINN RÆTIST Fitzgerald og Zelda giftu sig og' settust að í New York. Á hveiti- brauðsdögum sínum eltu þau hvort annað gegnum hringsveifluhurð hótels síns í hálftíma aðeins í leik og Ijúfu gamni. Allt landið hélt hátíðleg styrj- aldarlokin og gladdi sig við frjáls- an markað. Stúlkurnar settu upp hárið, drukku gin og dönsuðu Charleston. „Ameríka var á hæsta tindi hamingjunnar í allri sögu sögu sinni,“ skrifar Fitzgerald, og sannarlega gerðist margt frásögu- vert. Hann og Zelda létu ekki sitt eftir liggja í öllum fagnaðinum, — hamingjusöm hjón. Scott tjáði tilfinningar þeirra og taktfall tímans í sniðugum vísum, sem allir sungu alls staðar. Þau voru kát, áhyggjulaus og létt lynd. Þau drukku kampavín, ferð- uðust um á bílþökum og steyptu sér í laugina á Hótel Plaza. Einu sinni fóru þau í samkvæmi í náttklæðum einum. Þau virtust alveg á valdi auðæf- anna. „Auðmenn eru ekki líkir þér og mér,“ byrjar Scott eina smásögu sína, og samþykkir fullyrðinguna líkt og Hemingway í háði: „Þeir hafa nefnilega meiri peninga." Þau fóru til Evrópu og reikuðu um meginlandið líkt og Sígaunar, þar sem Scott umhverfði næstum öllu, sem á vegi þeirra varð til for- vitni fyrir fjöldann. Zelda lærði ballet, skreytti sig og skrifaði fjörlegar smásögur. Scott vann og lék með ægilegum áhuga, stundum 21 klukkustund í einni lotu. Lifnaðarhættir hans gáfu rit- verkum hans alveg sérstaka töfra í vitund fjöldans. Hann var í raun og veru mesti áhlaupagarpur. „Ég er strithundur," skrifar hann einum út gefanda sinna, Maxwell Perkins. „Allt, sem ég hef afrekað, hefur kostað mig mikið erfiði." Fitzgeraldhjónin komu aftur heim til St. Paul og eignuðust dóttur, sem skírð var Frances en kölluð Scottie. Eftir að bók Scotts „Bless-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.