Úrval - 01.09.1974, Page 83

Úrval - 01.09.1974, Page 83
TAKIÐ OFAN FYRIR KISA 81 íálmandi stökki, sem kom mér til að hlæja og gráta í senn. Við og við ærðist hann, þegar hundsgelt eða annað ógnandi hljóð kom honum til að hlaupa stefnu- laust út í bláinn, án þess að hafa hugmynd um, hvert hann var að fara. Svo gaf hann frá sér ókenni- legt hljóð, sem ég lærði með tíman- um að var hróp á hjálp. Fyrst í stað fór þetta blindandi fálm í taugarnar á hinum köttun- um, vegna þess að hann gat ómögu- lega forðazt að rekast á þá. Stór fressköttur, sem hét Pétur, var sér- lega fjandsamlegur og gaf honum oft hressilega ráðningu. En svo gerðist nokkuð athyglisvert. Tím- um saman sat Pétur og starði hissa á Marco; og að lokum rann upp fyrir honum að sér var nokkuð nýtt á ferðinni, sem hann varð að taka visst tillit til. Hvenær sem hann þaðan í frá sá Marco stefna á hann, stökk hann úr vegi fyrir honum. Síðan fengu hinir kettirnir sama skilning á málinu og Marco fékk að fara í friði. Árin liðu. Við höfðum öll vanizt þessari bæklun Marcos, blinda hans varð eins og sjálfsagður hlutur og eftir því sem minning hans sjálfs um sjón fjarlægðist, vandist hann þessu líka. Þegar hann var 12 ára, fór að halla undan fæti fyrir hon- um. Hann fór ekki lengur í sólböð uppi á þakinu, heldur lét sér nægja að liggja í sólinni við húsið. Og þegar hann var 13 ára fékk hann slag og lamaðist. Meðan ég var að bræða með mér að binda endi á líf hans, sýndi hann mér fram á, að hann hefði ákveðið að gefast ekki upp. Dag eftir dag þjálfaði hann löm- uðu fæturna; til að byrja með hreyfðust þeir í smá kippum, en markvisst styrktust þeir. Hann reyndi að standa upp, en féll útaf, reyndi aftur og datt, en hann hélt áfram þar til hann stóð sigurglað- ur riðandi á öllum fjórum. Þegar hann gekk, dró hann fæturna dá- lítið, svo göngulagið varð sérkenni legt og vaggandi. Þegar hann vildi láta hleypa sér út, veltist hann nið- ur tröppurnar, reis upp og hélt ákveðinn sinn veg. Þegar hann var 14 ára, varð eft- irtektarverð breyting á háttarlagi hans. Hann gat varla beðið með að komast út á morgnana, en í stað þess að leggjast í sólbað, settist hann niður, sneri sér til skógar og vældi. Marco vildi komast í sinn elskaða skóg, en komst ekki lengur hjálparlaust. Ég hafði gaman af að reika um skóginn, svo um eftirmið- daginn kallaði ég á hann til þess að hann gæti fylgzt með mér, og hann lét ekki á sér standa. Það var nokk urt vandamál fyrir hann að kom- ast yfir lækinn, svo ég reyndi að halda á honum, en hann sneri sig óþolinmóður úr fanginu á mér og vildi komast upp á eigin spýtur, jafnvel þótt hann gæti ekki fundið stiklusteinana. Þá mundi ég hvern- ig ég hafði kennt honum, hvar hann ætti að finna matinn sinn, svo ég stappaði fætinum fast niður á hvern stein, svo hann gæti fylgt hljóðinu eftir. Þetta gekk furðu vel, þótt af og til mistækist honum og hann dytti út í. Það virtist ekki
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.