Úrval - 01.09.1974, Síða 120

Úrval - 01.09.1974, Síða 120
118 ina með sér. Hann hefur aðeins skotið tvær rjúpur. Harðréttið hef- ur sett mark sitt á andlit hans, en augu hans ljóma, af því að hann er aftur meðan manna. í DAG, 12. APRÍL, stendur Her- mann úti og smíðar trébretti til að spýta refaskinnin á. Allt í einu bankar hann á gluggann og kallar okkur Karl út. „Hlustiði,“ segir hann, ljómandi af gleði. Langt í burtu hljómar mannsrödd gegnum. kyrrðina. Allt í einu kemur sleði í Ijós fram undan klettasnös. Hann er ekki stærri en leikfang frá okk- ur séð, en Hermann þekkir eykið. Það er vinur hans, veiðimaðurinn Nois, sá sem byggði kofann okkar. Hann rennir upp að okkur. Við fögnum því af alhug að sjá nýtt andlit, og Nois fagnar því að finna okkur heilu og höldnu. Inni í kof- anum dregur hann stóran böggul með pósti til okkar upp úr far- angri sínum. og við tökum þegar að lesa, lesum hvert einasta orð af stakri græðgi — síðan verðum við að heyra allar fréttirnar og nýjustu kjaftasögur. Hádegismaturinn er því miður allt annað en glæsilegur. Við segj- um Nois, að það hafi verið ógern- ingur að fá nýtt kjöt. ,,Já, veiðin hefur gengið illa hér,“ svarar hann. . En um páskana komið þið til mín. Ég á fullt af rjúpu og hef geymt krukku af marmelaði handa ykk- ur. Mér til mikillar undrunar frétti ég nú, að við eigum að fara eftir nokkra daga suður eftir með Nois til þess að ná fyrsta skipinu heim. ÚRVAL Þetta er í samræmi við ráðstafanir Hermanns frá þvx í haust. Þótt ég sé fegin því að fara heim, finnst mér snubbótt að yfirgefa þetta land svona fljótt. En ég vil ekki blanda mér í gerðir karlmann- anna, svo ég fer að undirbúa brott- förina. Kvöldið áður en við eigum að leggja af stað göngum við öll snemma til hvílu. Þegar hljótt er orðið í kofanum, laumast ég út til þess að kveðja staðinn. Þetta er undursamleg nótt, kyrr og friðsæl. Snævi þaktar fjallahlíð- arnar njóta dvínandi bjarma af sól á norðurslóðum. Náttúran skartar sínu fegursta. Þegar ég læðist hlióð lega inn í kofann aftur, veit ég, að ég fer ekki héðan í fyrramálið með öllum hinum. Ég get ekki rifið mig frá þessum stað núna. Ég veit, að hér verður ennþá fegurra, þegar dýrin koma aftur og náttúran vaknar til lífsins. Næsta dag tilkynni ég karlmönn- unum ákvörðun mína. Karl segir af bragði: „Svalbarðaveikin. Hún er orðin snarvitlaus!" „Þú mátt vera á sleðanum alla leiðina," segir Nois. Hann heldur, að ég kvíði fyrir hinu langa ferða- lagi. Aðeins maðurinn minn sesir ekki neitt. Hann skilur mig. Við tvö verðum hér. Það er erfitt að kveðja Karl. þann góða og trygga félaga okkar frá vetrarnóttinni löngu. Við mun- um aldrei gleyma umhyggju hans. hlýhug oa liómandi skaplyndi. Við þrýstum hendur hans og Nois hlýtt og þétt. Svo helrrist svipusmellur og hundarnir leggjast í óiarnar.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.