Úrval - 01.01.1976, Blaðsíða 42
40
áður en hann breyttist í nóttu, sem stóð
þrefalt iengur en venjulega. í Kína segja
gamlar skræður frá ótrúlegum tíma, þegar
sólin settist ekki í marga daga en landið
brann.
Þessar hamfarir voru líka orsökin að
eftirminnilegasta þætti Gamla testament-
isins, segir Velikovsky: Brottför ísraela úr
Gyðingalandi. Hörmungarnar steyptu
miðveldi Egyptalands og Móses leiddi
þjóð ísraels, sem áður voru þrælar, út úr
eyddu landinu. Þegar þeir flúðu yfir
landamærin, stóð gríðarmikil súla elds og
reyks 1 stefnu þeirra.
I augum flýjandi ísraela var þetta
táknið, sem vísaði þeim veginn til Pi-ha-
khiroth, við Rauðahafið. Á eftir þeim
geystist bálreiður Faraó í hefndarhug með
her sinn. Framundan var sjávarbotninn,
auður og þurr, en til beggja hliða stóð
vatnið eins og veggur. Því ollu hreyfingar
jarðskorpunnar og rafsegulmögnuð áhrif
Venusar, ásamt þeim áhrifum, sem
nánd plánetunnar hafði á jörðina. ísraelar
hikuðu, en þutu síðan út á sjávarbotninn,
sem samkvæmt gömlum gyðingabókum
var heitur. En þegar herir Faraós fylgdu
eftir, varð skammhlaup milli jarðar og
Venusar, og særinn féli á ný í sinn fyrri
farveg.
Minnstu munaði, að mannkynið þurrk-
aðist út, um ailan heim. Og þeir, sem af
komust, stóðu frammi fyrir öðrum vanda:
Hungurdauða. En þá átti sér stað önnur
furða, sem skráð var alls staðar þar sem
menn kunnu að skrásetja einhverjar sögur.
Kolvetnið í hala stjörnunnar, sem hafði
gegnvætt jörðina í olíu, var nú smám
saman að breytast í andrúmsiofti jarðar-
innar, ef tii vill vegna gerlaverkunar, ef tii
vill vegna látlausrar rafmögnunar, og
verða að ætilegu efni — sem ísraeiar
ÚRVAL
kölluðu manna, Grikkir ambrosia, hindú-
ar madhu.
Þessi mikla nálægð við Venus olli einnig
upphafningu þyngdarlögmálsins eða
breytingu á þvt, sem aftur gerði það að
verkum, að snúningur jarðar breytti um
stefnu. Þeir af íbúum jarðarinnar, sem
enn lifðu urðu nú að þola þá furðu ofan á
annað, að sólin reis í vestri en settist í
austri. Árstíðirnar snerust við. „Vetur er
orðinn að sumri, mánuðirnir eru afturá-
bak, stundirnar eru ruglaðar,” segir í
gömlum, egypskum papýrus. I Kína sendi
keisarinn vísindamenn til hinna fjögurra
horna landsins til þess að finna á ný
norður, suður, austur og vestur og búa til
nýtt dagatal. í heilan mannsaldur var
Jörðin skýjum hulin — Dauðaskugga ritn-
ingarinnar, Ragnarök norrænna kynþátta.
Þetta stóð í 25 ár, segja fornar heimildir
Maya.
Smám saman fóru Jörðin og íbúar
hennar að ná sér. En aðeins um hálfri öld
síðar, eða um 1400 fyrir Kr>st, eftir því
sem Velikovsky túlkar hinar fornu heim-
ildir, gerði Venus aðra atlögu að Jörðinni.
Aftur snaraðist Jörðin á öxii sínum, byltist
og skalf. Þær fáu borgir, sem búið var að
endurreisa, hrundu 1 rúst. I Jósúabók segir
að guð hafi kastað stórum steinum á
Kanaansmenn. Hinum megin á hnett-
inum, segja mexíkanskar sögur frá löngum
nóttum. Enn einu sinni lék jörðin á
reiðiskjálfi af jarðskjálftum og fellibyljum
um allan heim, löndin breyttu sér og
eyðileggingin geysaði hvarvetna.
Það fólk sem lifði af þessar síðari
hörmungar, beygði sig fyrir hinni skeifi-
legu stjörnu Venusi, gyðju elds og
eyðingar og reyndi að friða hana, hvert
eftir sínum venjum og arfi, með mann-
fórnum og blóðugum helgisiðum, með
bænum og söng. Fleygrúnatöflur, sem