Úrval - 01.01.1976, Síða 71
HVAD BLÖÐIÐ OG ÞVAGIÐ SEGIR UM ÞIG
69
meltingu fitu. En sé það fyrir hendi í
þvaginu, kann slíkt að benda til lifrar-
sjúkdóms, blóðsjúkdóms eða þess, að gall-
blaðran starfi ekki rétt.
Venjuleg greining mun einnig taka til
rannsóknar setefna, sem safnast fyrir í
botni tilraunaglassins, eftir að þvagið
hefur haft tækifæri til að setjast. Þá
er fyrst og fremst verið að leita að blóð-
kornum. Blóð i þvagi er eitt af hættu-
merkjunum, sem getur bent til krabba-
meins í þvagrás. Það er einnig algengt
einkenni nýrnasteina eða sýkingar í þvag-
rás, sem venjulega má ráða bót á með
fúkalyfjum.
Þýngd þvagsins eða eðlisþyngd þess er
einnig mæld og athuguð i tengslum við
aðra þætti. Sé þyngdin of lítil, getur
slíkt bent til, að nýrunum takist ekki að
halda nægilega miklum líkamsvökva eftir í
líkamanum. Jafnvægi milli sýru og lútar
er einnig mjög mikilvægt. Þvagið er
venjulega svolítið súrt. Sé það lútkennt,
getur slikt verið einkenni um þráláta
blöðrusýkingu, en það getur einnig gefið
til kynna grænmetismataræði, og venju-
lega er þá ekki ástæða til að hafa áhyggjur.
Sumir af helstu þáttum framfara í
sjúkdómsgreiningu á síðasta áratug eru
tengdir dásamlegri vél, sem kölluð er
,,gas chromatograph”, en hún getur
greint flóknar blöndur sundur i hin ýmsu
efni, sem mynda hana, með því að breyta
þeim i gufukennt ástand. Og með hjálp
tölvu getur hún greint, hver efni þessi eru.
Eftirfarandi saga er gott dæmi um hæfni
þessarar vélar: Ungur maður fannst með-
vitundarlaus á strætisvagnastöð í Wash-
ington. A úlnliðnum bar hann armband
með upplýsingum um, að hann þjáðist
af sykursýki. Honum var ekið I flýti til
nálægs sjúkrahúss, og að nokkrum mínút-
um liðnum var nokkrum blóðdropum úr
KVIKASILFURSGOLA A TUNGLINU?
Sovéskir visindamenn telja, að á tunglinu myndist hæg kvikasilfursgola.
Við rannsóknir á efhissýnum af yfirborði tunglsins, sem sjálfvirku, sovésku
tunglflaugarnar Luna-16 og Luna-20 komu með til jarðar, hafa menn komist að
raun um, að sýnishornin, sem Iuna-20 tók á meginlandssvæði tunglsins,
innihaldi fjórum sinnum meira magn af kvikasilfri heldur en sýnis-
hornin frá tunglhafinu. Vísindamennirnir telja líklegt, að þessi mis-
munur stafi af vindskilyrðum. Kvikasilfurgufa, sem myndast þegar dagur
erá tungiinu (hitinn fer upp í 150 stig), berst með þessum vindum til kalldari
meginlandssvæða. Kælingin veldur þvl, að gufan þéttist og fellur á yfirborð
tunglsins. Er það skoðum vísindamannanna, að hæg gola sem ber með sér
kvikasilfurgufu, blási umhverfis miðbaug tunglsins.
APN