Úrval - 01.01.1976, Side 101

Úrval - 01.01.1976, Side 101
,,LÁTTU ÞÁ HÁFÁ ÞÁD, HARRY!" ætluðu þeir að stöðva járnbrautirnar. , Jæja, drengir, sagði ég við þá. ,,Vel má vera, að guð hafi skapað heiminn á sex dögum. En það var áreiðanlega fyrir tíma verkalýðsfélaganna. Ef þið haldið, að ég ætli að sitja hér og láta ykkur lama iandið, eruð þið vitlausari en sjálfur andskotinn. Þið hafið 48 klukkutíma til að komast að samkomulagi. Ef þið gerið það ekki, yfirtek ég járnbrautirnar í nafni stjórn- arinnar.” Fólk spyr mig, hvernig mér líki þetta starf. Nú, jæja, það er dável borgað. Vissulega er mikið að snúast. Og auðvitað er rétt sama, hvað maður gerir, það eru alltaf einhverjar manntuskur á móti því. Mér þykir trúlegt, að þetta sé eitt um- deildasta starf heimsins. Fólk er meira að segja að fá sér til orðfæri mitt. Sagan segir, að gömul partípúta hafi snúið sér að Bess og sagt við hana: ,,Frú Trúman, getið þér ekki fengið forsettann til þess að hætta að nota orðið „mykja?” Og Bess á að hafa svarað: ,,Það hefur nú tekið mig 40 ár að fa hann til að nota svo dannað orð.” Leiðtogar heimsins? Að mínu viti var Winton Churchill mikill stjórnmálamaður og séntilmaður þar á ofan. Stalin? Hann var nú úr annarri átt. Hann var mjög afkastamikill, forfallinn og frjósamur lygari. Þegar ég fór til fundar við hann í Potsdam, drakk hann vodka allan timann, og ég gat ekki annað en dáðst að þvi, hvað hann gat drukkið án þess að verða fullur. Svo var það á fjórða degi, að ég seildist eftir glasinu hans og saup á — það var þá bara hvítvín! Það er þrennt á jörðu hér, sem getur eyðilagt karlmanninn: Völd, auðæfi og konur. Ef maðurinn getur þegið valdið eins og eitthvað, sem hann hefur aðeins um tíma, er allt í lagi. En ef hann heldur, 99 að valdið sé til orðið hans vegna, fer illa fyrir honum. Og peningar, ef maðurinn græðir of mikið, og of hratt, getur svo farið að peningarnir einangri hann frá öðru dauðlegu fólki, sem verður að vinna mestan hiuta ævinnar til þess að hafa rétt til hnífs og skeiðar. Og ef maðurinn er fjölskyldu sinni ótrúr, fer það með hann. Því ef þú hefur þinn rétta ævifél- aga, þarftu ekki að óttast margt. Ég skal segja ykkur, að þegar ég var að stíga í vænginn við Bess, skrifaði ég henni heil bilhlöss af bréfum. Einu sinni, eftir að ég var orðinn forseti, fann ég hana á hnjánum við eldstæðið, þar sem hún var önnum kafin að brenna þessi bréf. Ég sagði að hún ætti ekki að vera að þessu, en hún spurði á móti: „Hvers vegna ekki? Ég er búin að lesa þau.” Ég svaraði: ,,En Bess, hugsaðu um söguna!” ,,Það er nú einmitt það sem ég er að gera,” svaraði hún og hélt áfram að raða bréfunum I eldinn. Raunin er sú, að menn gætu orðið ríkir á þessu starfi, ef þeir legðu sig eftir þvi. En ég komst að nokkru fyrir langa- löngu: Þegar maður leikur sér við pen- ingamennina, verður maður að borga. Ég hef gert nokkrum vinum mínum greiða gegnum árin, rétt eins og hver annar áhrifamangari i Washington, en aldrei hef ég haft nokkurn hagnað af því sjálfur. Og ég get sagt fleira: Enginn getur orðið rikur á pólitík, nema hann sé svikahrapp- ur! Það er útilokað. Ég komst á heldur einkennilegan hátt inn I pólitíkina. Ég var i þjóðvarðliðinu fyrir fyrri heimsstyrjöldina, og einn af félögum mínum þar, liðsforingi eins og ég, hét Jim Pendergast. Frændi hans, Tom, rak Pendergast áróðursvélina. Við Jim urðum mestu mátar. Þegar ég kom aftur úr stríðinu, opnaði ég vefnaðarvöru-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.