Goðasteinn - 01.09.1962, Page 17
Þórður Tómasson
Einar lli'njsii'iiissiin
klæðskeri
MINNING:
„Enginn veit, hvað átt hefur, fyrr en misst hefur“. Hóflega
deilum við gleði og sorg með vinum okkar og leiðum vart hugann
að því, hve lífið er fljótt í förum. Mikil er sú blessun að eiga
góðan vin, hressan, hugglaðan á hverju sem gengur, alltaf búinn
þess að taka stein úr götu. Seint verður slíkt að verðleikum metið.
Oft gerum við okkur ekki ljóst, hvers virði vinir okkar eru í
raun og veru, fyrr en þeir eru horfnir á braut, tökum líf þeirra og
vináttu eins og sjálfsagðan hlut.
Fullt ár er liðið, síðan góðvinur minn, Einar Bergsteinsson, var
kvaddur í þá för, sem bíður allra manna. Vil ég minnast hans
með nokkrum orðum og má vart seinna vera. Verður er hann
þess af mörgum, að nafni hans sé á lofti haldið.
Einar var fæddur að Tjörnum undir Eyjafjöllum 15. nóvember
1881. Foreldrar hans voru Bergsteinn Einarsson frá Seljalandi og
Anna Þorleifsdóttir frá Tjörnum. Anna var af merkum bænda-
ættum í Landeyjum og undir Eyjafjöllum. Er auðvelt að rekja
Goðasteinn
15