Goðasteinn - 01.09.1971, Side 6
þessari öld. Heimskreppan með öllum sínum erfiðleikum lagðist
yfir verzlun og afkomu bænda á þeim árum. Fleira kom þó til,
sem gjarna má koma fram, þegar saga Kaupfélagsins er rituð.
Þegar Kaupfélagið var stofnað árið 1919, var viðskiptasvæði þess
strandlengjan frá Austur-Eyjafjöllum að Þjórsá, auk hluta af
Fljótshlíð og Hvolhreppi. Árið 1928 voru viðskiptamenn úr
Þykkvabæ og flestir í Fljótshlíð farnir frá vegna bættra samgangna
á landi. Þar með hafði viðskiptamönnum fækkað um þriðjung. Þá
má geta þess, að á árunum 1928-1930 voru aðdrættir sjóleiðis þeir
erfiðustu, sem ég man eftir allan tímann frá 1920. Til dæmis má
geta ársins 1930, þegar vöruskipið „Magnhild“ kom til landsins
hinn 18. maí, en síðustu vörurnar voru ekki losaðar úr því fyrr
en hinn 24. júní (Það var daginn, sem Alþingishátíðin var sett á
Þingvöllum.) Þannig var ástatt fyrir Kaupfélaginu 1930, að vart
var nema um tvennt að velja, að leggja það niður eða reyna
nýjar leiðir. Var síðari kosturinn valinn.
Árið 1930 voru farnar að vakna vonir um að fljótlega kæmi
brú á Þverá. En með slíkri brú mundu gjörbreytast samgöngur við
verzlunarsvæði Kaupfélagsins, þannig að Hallgeirsey yrði ekki
eins heppilegur verzlunarstaður og áður. Því var sá kostur tekinn,
að setja upp útibú í Hvolsvelli, sem síðar varð heimili Kaupfélags-
ins og er það enn. Ég hef verið fjölorður um þenna tíma úr sögu
Kaupfélagsins, því að ég tel að hann hafi ráðið úrslitum um það,
að Kaupfélag Rangæinga er til í dag. Vil ég í lok þessara hug-
leiðinga færa öllum þeim, sem með mér unnu, mínar innilegustu
þakkir fyrir allan þann stuðning, er þeir veittu mér á þessum
erfiðu árum.Betra seint en aldrei.
Frá árunum 1930 til 1941 er mér efst í huga: 1) Flutningur Kaup-
félagsins frá Hallgeirsey að Hvolsvelli. 2) Mjólkursala og mjólkur-
flutningar til mjólkurbúanna og baráttan fyrir því að fá bændur
til að breyta búskaparháttum með breyttum aðstæðum. 4) Slátrun
sauðfjár heima í héraði. í Djúpadal hafði Sf. Sl. sett upp útibú
fyrir slátrun 1200 fjár á ári. Fyrir afskipti Kaupfélags Hallgeirs-
eyjar fékkst breyting á þessu árið 1939. Var þá skipt um stjórn og
framkvæmdastjóra útibúsins. Árið 1940 var sláturfjártalan aukin
í 3000, og mér er tjáð að á síðastliðnu hausti hafi verið slátrað
4
Goðasteinn