Goðasteinn - 01.09.1971, Side 10

Goðasteinn - 01.09.1971, Side 10
rætt um það að aukast þyrftu innlegg viðskiptamanna hjá félaginu, því að þá hafði mjög úr þeim dregið. Kom og fram að mikils misræmis virtist gæta á ullarmati hjá félaginu og nærliggjandi verzlunum. Þótti sumum K.H.S. gera of miklar kröfur miðað við aðra. Var þetta afleiðing hinnar hörðu samkeppni, sem á var komin milli Kaupfélags Hallgeirseyjar og Kaupfélagsins Þórs á Hellu, sem stofnað hafði verið 1935 og neytti ýmissa bragða til að efla starfsemi sína og ná til sín sem flestum félagsmönnum og við- skiptavinum. Á aðalfundi K.H.S. 30. maí 1936 kom það fram að Ragnar Ólafsson lögfræðingur S.f.S. hafði þá um skeið unnið hjá félaginu að samningum um skuldaskil við ýmsa viðskiptamenn og hélt þvi starfi áfram öðru hverju um sumarið. Var ekki örgrannt um að hagur félagsins hefði vænkast nokkuð, nema hvað það var sérlega illa statt gagnvart S.Í.S. og samþykktu fundarmenn að verja skyldi öllum tiltækum sjóðum til að grynnka á skuldunúm. Þá kom og fram að nauðsyn bæri til að auka húsrými félagsins að Stórólfs- hvoli og var samþykkt að flytja uppeftir vörugeymsluhúsið í Hall- geirseyjarhjáleigu og byggja annað minna á góðum stað í Land- eyjum í þess stað. Sæmundur Einarsson í Stóru-Mörk var kosinn varamaður í stjórn á þessum fundi. Á stjórnarfundi síðari hluta vetrar 1937 minntist fundarstjóri Sigurðar Vigfússonar á Brúnum, er látizt hafði í árslok 1936. Risu fundarmenn úr sætum í virðingu við hinn fallna formann og braut- ryðjanda samvinnustefnunnar í héraðinu. Útför hans hafði verið gerð á vegum félagsins og samþykkti fundurinn þá ráðstöfun samhljóða. Á þessum fundi var mættur Ragnar Ólafsson lögfræðingur, og flutti hann yfirlit um efnahags- og rekstrarreikning félagsins, er hann hafði unnið að ásamt framkvæmdastjóra. Kom þá í ljós að félagið skorti kr. 127 þúsund til að geta staðið við skuldbindingar sínar út á við. Fól fundurinn framkvæmdastjóra að kanna, hvort Samband íslenzkra samvinnufélaga treysti sér til að veita kaup- félaginu einhverja eftirgjöf skulda, er gerði því kleift að halda starfi sínu áfram. Einnig skyldi kannað, hversu mikið félagsmenn vildu að sér leggja með framlögum í sama tilgangi. Framkvæmda- 8 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.