Goðasteinn - 01.09.1971, Page 21

Goðasteinn - 01.09.1971, Page 21
hann sér í áhald og losaði um tappann. Sá hann undir eins, að þetta var hrein steinolía. Þarna var bölið bætt, næg brennsluolía fengin til næstu hafnar. Ýting bátsins gekk að óskum, en brátt kom í ljós, að hann lak svo mikið, að ekki hafðist við að dæla með góðri handdælu, sem tveir menn unnu við til skiptis, og flaut sjór jafnt og þétt inn í sveifaráshúsið. Sveifaráslegan bræddi því svo herfilega úr sér á leiðinni, að Gissur véiamaður var lengi dags að bræða í hana. Notaði hann stóran lóðhamar til að bræða legumáljminn með og var það mest tin. Til þess gekk helzt allt, sem til var af því í verzlun á Höfn í Hornafirði. Með þessari legu gekk vélin ágætlega til Reyðarfjarðar. Til þess að sveifarásinn ysi ekki sjónum upp um vélarhúsið, þá iét Gissur margfaldan poka liggja á góifinu öðrum megin vélar. Hefti það vatnsgusurnar í að þeytast um allt vélarhúsið. Við gerðum við mesta lekann á Jennýju á Höfn, áður en hún lagði til austurferðar, áfram heim. Mig minnir, að Jenný væri um 7-8 tonn að stærð. Ég var með Gissuri í að taka í sundur mikið af vélinni og hreinsa lýsið úr henni, því nú var skipt um og notuð bulluolía, vanaleg. Er vafasamt, að sellýsi hafi í annan tíma verið tekið til þessara nota. Það sagði Valdór sál. mér um það, er hann kastaði klæðum og óð út í sjóinn til að ná í tunnuna, hefði hann áður tekið blað og blýant og skrifað, hvað þá væri að gjörast, svo sjást mætti, hvar og í hverjum tilgangi hann hefði farið í sjóinn, ef hann hefði ekki skilað honum aftur heilum á húfi. Þátt þennan vil ég auka með sendibréfi frænda míns, Sveins Jónssonar frá Núpum, sem tók þátt í að ná Jennýju út og sigldi á henni austur til Hornafjarðar. Fer það hér á eftir: Kópavogi, Digranesvegi 16 a, 19. apríl, 1970. Kæri frændi og vinur. Hjartans þakkir fyrir bréfið frá 27. febrú- ar 1970. Það vakna upp í huganum hálfgleymd - mér liggur við að segja ævintýri, er skeðu fyrir um 50 árum. Ég var að vísu ekki alveg ósjóaður undir þennan túr, því ef ég man rétt, reri ég um veturinn í Þórkötlustaðahverfi í Grindavík hjá Guðmundi í Klöpp. Vorum við á sama skipi Björn Stefánsson á Kálfafelli og Helgi Goðasteinn 19

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.