Goðasteinn - 01.09.1971, Side 22

Goðasteinn - 01.09.1971, Side 22
Eiríksson á Fossi á Síðu. Þó getur verið, að Helgi hafi verið á skipi hjá Árna syni Guðmundar, en bæði skipin reru úr svokall- aðri Buðlunguvör. Ýmislegt, er þú minnist á, er nú farið að fyrnast yfir hjá mér. Kemur það meðal annars til af því, að ég hefi ekki haft neinn til að rifja upp með þessa og aðra atburði frá fyrri tfmum, vegna minna sífelldu ferðalaga um aðra landshluta en mínar æskustöðvar. Ég var nú satt að segja búinn að gleyma bæði selnum og olíu- tunnunni en gaman, að þú skyldir minnast á þau atvik. Það tók að mig minnir þrjú flóð, eða á þriðja flóði, sem Jenný sigldi frá strandstaðnum. Þegar félagarnir, Valdór Bóasson og Gissur Filippusson, voru búnir að prófa vélina í bátnum, var safnað mönn- um til að baka bátinn um fjöru ofan í fjörujmál. En áður en það skeði, voru þeir félagar búnir að leggja út akkeri nokkuð frá landi með taug í land, því er falla tók undir bátinn, þurfti að vera hægt að koma í veg fyrir, að hann rynni upp aftur. Þarna voru saman komnir milli 30 og 40 menn, sem fóru létt með að baka fram, því nógur var viljinn til að þetta björgunarstarf tækist giftusamlega. Svo slysalega vildi til á fyrsta flóði, að taugin, sem lá frá akkerinu, slitnaði, og enn rann Jenný upp í sandinn. Það var ekki gefizt upp, enn kom fjöldi manns í sandinn til að baka bátinn fram á næstu fjöru. Nú skyldi akkeriskaðallinn halda, selm hann líka gerði, en nú skeði það, að kaðalspotti fór í skrúfuna á bátnum þar sem hann flaut, en ekki var hægt að sleppa landfestum undir þessum kringumstæðum. Tók nú Valdór það ráð að klæða sig úr fötum og festa um sig taug, og með hníf í hönd stakk hann sér niður með bátnum til að reyna að losa úr skrúfunni, en ekki tókst það, og varð hann að koma upp til að anda, og í annað skipti gerði hann tilraun, en það fór á sömu leið. Má af þessu sjá, að maður- inn var hugdjarfur og hraustur. Á þriðja flóðinu tókst allt betur til, báturinn rann út eins og hann væri á slipp, eða öllu heldur - hann lyftist á flóðinu, land- festum var sleppt, og ferðin hófst austur. Til þessarar ferðar réðumst við tveir, Jón Hjörtur Sigjmundsson lausamaður á Núpum, mágur Helga Bjarnasonar bónda þar. Jón var sonur Sigmundar Þorsteinssonar bónda þar og Margrétar 20 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.