Goðasteinn - 01.09.1971, Side 24

Goðasteinn - 01.09.1971, Side 24
Eymundur Jónsson í Dilksnesi: Þúsund dyggða grös Guð framleiðir grösin smá, Guðs hér verkin ljóma, þúsund dyggðir þeirra má þúsund sinnum róma. Svöngum mér þau saðning fá, sízt má um það þegja, á haustin, þegar harðnar á, hníga þau og deyja. Æ mig gleðja blómin blíð, með blómum er ég talinn, ég blikna eins og blóm um síð, með blómum fell í valinn. Þúsund dyggða grös kallast nú klettafrú öðru nafni. Höfundur ljóðsins er Eymundur Jónsson í Dilksnesi í Hornarfirði og er skráð við það ártalið 1849 í ljóðabók hans (handrit). Þetta voru fyrstu vísur Eymundar, sam hann skrifaði á blað. Ekki ber að skilja ár- talið svo, að hann hafi ort vísurnar 1849, heldur byrjaði hann þá að tína grösin. Af þúsund dyggða grösum óx töluvert í skriðu vestur af Hofs- koti í Öræfum, þar sem Eymundur fæddist. Var hann látinn tína þau á vorin. Þau voru seydd í mjólk og notuð til manneldis, þegar lítið var til í búi. Guðrún Sn)ólfsdóttir á Höfn. 22 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.