Goðasteinn - 01.09.1971, Blaðsíða 28
höndum einn gafi, sem ég fann djúpt í jörðu í Holti undir Eyja-
fjöllum snemma árs 1971.
Ekkert skilur á milli gerðar troga með ólíkum heitum. Mjólkur-
trogið gat eins vel verið blóðtrog og sláturtrog, svo að dæmi séu
nefnd. Gamalt mjólkurtrog endaði oft ævi sína sem öskutrog. Það
væri þá helzt laugatrog barnsins, sem væri ögn ólíkrar gerðar,
mjórra og dýpra. Þannig er gamla laugatrogið frá Keldum á Rang-
árvöllum, sem ég sá hjá málvini mínum, Sigurði Sigurðssyni dýra-
lækni. Laugatrog Skógasafns úr búi Tómasar Jónssonar og Salvar-
ar Snorradóttur á Arnarhóli er hins vegar að öllu'sem venjulegt
mjólkurtrog og var líka áreiðanlega mjólkurtrog nema þegar laug-
uð voru í því blcssuð ungbörnin.
Oftast mun mjólkurtrog hafa vcrið notað sem blóðtrog, er
blóðga skyldi skepnu, og sum gömul blóðtrog bera því ótvírætt
vitni. Margir slátrarar fyrri tíðar krössuðu með hníf sínum kross
í botn bióðtrogsins, áður en þeir brugðu um barkann. Sumir létu
þó nægja að rnarka krossinn í lausu lofti yfir trogsbotninum. Mél-
trog heimilisins var áþekkt mjólkurtrogi en aðeins notað se(m mél-
trog. Eitt méltrog er í Skógasafni, úr búi Rannveigar Guðmunds-
dóttur á Brekkum í Mýrda).
Driftutrog notuðu Skaftfellingar og Rangæingar í Háfshverfi
og Þykkvabæ við hreinsun melkorns. Þau voru mun mjórri en
mjólkurtrog og með höldum á göflum. Líklega er ekkert gamalt
driftutrog til. Driftutrog Þjóðminjasafnsins og bvggðasafnsins í
Skógum eru ungar eftirlíkingar hinna gömiu. Driftutrog Skógasafns
hlaut þó þann heiður að vera notað við vinnu í meltekjukvikmynd
Skaftfellingafélagsins í Reykjavík. Það er smíðað af Hannesi
Hjartarsyni á Herjólfsstöðum.
Ámulningstrog voru notuð, er hlöss voru mulin á túni. Muln-
ingurinn var tekinn upp í trogið og síðan var honum dreift með
hægri hönd út yfir túnið. Eitt ámulningstrog er í Skógasafni, kom-
ið úr búi Runólfs Runólfssonar í Dyrhólahjáleigu. Slíkt trog gat
á öðrum tímum líka gegnt því hlutverki að vera taðtrog í eldhúsi.
Öskutrog Skógasafns er úr gamla hlóðaeldhúsinu á Kvoslæk í
Fljótshlíð, og bera nokkrir brunablettir vitni um starf þess. Án
efa hefur það að upphafi verið smíðað sem mjólkurtrog.
26
Goðasteinn