Goðasteinn - 01.09.1971, Side 42

Goðasteinn - 01.09.1971, Side 42
var við skörina, svo Loftur taldi rétt að leita vaðs við sjó fram. Var það ráð tekið, þar var vatnið dreifðara. Birta tók og þarna tókst að velja allgott vað og komast yfir þessla torfæru ásamt Múlakvísl. Nú var haldið alveg með sjónum, í flæðarmáli, þar sem lábar- inn fjörusandurinn var mátulega mjúkur undir fótum. Ofan við flæðarmálið var samanbarin snjóhrönn, sem hafaldan og frostvind- ur norðursins höfðu hjálpazt að við hleðsluna. Brimlöðrið skolaði fætur vegfaranda öðru hvoru, en léttar voru þær skvettur og komu ekki að sök. Stinningskaldi var og skafrenningur. Hjörleifshöfði gnæfði dökkur á brá úr mjallarauðninni. Um lágfjöru var komið að Stóraútfalli, þar sem Miðkvíslarnar renna saman í sæinn. Ágætt var að fara þar yfir á fjörubroti og leiðin sækist greiðlega. Brátt var þangað komið, sem mál þótti að yfirgefa fjöruna og leita byggða. Loftur vissi nokkra grein á leið- inni upp úr Suðurhögum Álftveringa, hafði oft farið hana, en ekki var gott að greina kennileiti. Drifhvít mjöllin huldi allt, og skaf- renningur hindraði útsýn. Nauðsynlegt var að ganga á undan hestunum, því víða leynast holur og gjótur, sem varast þarf. Samt gekk ferðin sæmilega, og engar teljandi tafir urðu á leiðinni upp- und.ir bæina. Þá var beygt til austurs, yfir Landbrotsá og að prests- setrinu Mýrum, en þar var viðkomustaður póstsins. Á Mýrum bjó Bjarni prestur Einarsson góðu búi. Þar fengu menn og hestar smáhvíld. Hey, matur og kaffi rausnarlega látið í té. Ekki mátti stanza lengi, afgreiðslu póstsins hraðað og svo lagt af stað austur á Fljót. Afætuálar, þó smáir væru, töfðu talsvert. Sums staðar vont að koma hestunum ofan af og upp á skarirnar, þar sem álskorur voru djúpar. Tókst þó slysalaust að koma öllu austur í Bæjarhólm og heim að Söndum. Þá var farið að dimma, menn og hestar lúnir, blautir og illa verkaðir. Sandamenn töldu naumast fært að leggja hestana til erfiðs sunds, fyrr en þeir höfðu hvílzt. Loftur póstur hafði ætlað að komast austur yfir en varð að hlýta þessu ráði, og göngumenn féllust á að bíða á Söndum til næsta dags. Það gekk vel að taka af hestunum og koma þeim í hús, þar sém grænt og gott hey var látið á stalla. Sannarlega þurftu þessir þörfu þjónar 40 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.