Goðasteinn - 01.09.1971, Síða 44
Einar H. Einarsson:
Tvö aflaskip í Reynishöfn
I.
FRIÐUR
Árid 1882 lét Jón Árnason, er þá bjó í Suður-Hvammi, smíða
undir sig stóran áttæring, sem hlaut nafnið Friður. Ekki liggja
fyrir öruggar heimildir um, hverja hann valdi meðeigendur að
skipinu.
Smiðurinn var Sveinn Einarsson bóndi á Giljum. Ekki ber frá-
sögnum saman um, hvort skipið hafi verið smíðað í Suður-Hvammi
eða á Giljum. Þó tel ég nær sanni, að það hafi verið á Giljuml.
Ekki var Jón formaður á hinu nýja skipi nema eina vertíð, því
um vorið eftir flutti hann að Eyjarhólum, en Frið var alla tíð róið
úr Reynishöfn. Þá tók við skipinu 25 ára gamall maður, Einar
Brandsson frá Reynishjáleigu, síðar bóndi á Reyni. Einar var
síðan formaður á Frið, meðan honum var haldið út til róðra, en
síðast gekk hann vetrarvertíðina 1928.
Öll þessi ár mun aldrei hafa komið sú vertíð, að ekki væri
einhvern tíma róið, en misjafnlega oft var það eins og gefur að
skilja við hafnlausa og brimasama strönd Mýrdalsins. Friður var
sérstakt happaskip. Ekki hef ég heyrt þess getið, að nokkru sinni
hafi orðið að manni á honum, og það hef ég fyrir satt, að aldrei
42
Goðasteinn