Goðasteinn - 01.09.1971, Blaðsíða 46
þeim saman í starfi hinum happasæla formanni, Einari Brandssyni,
og aflaskipinu Frið, sem báðir hafa lokið sínum hlutverkum en
söguna ber að geyma.
II
FARSÆLL
Árið eftir, að Sveinn Einarsson smíðaði Frið, fékk Hjalti Ein-
arsson bóndi á Suður-Götum hann til að smíða undir sig áttæring
af svipaðri stærð og Frið, en lengi var þá Hjalti búinn að vera
formaður á minna skipi, sem orðið var gamalt og lélegt.
Skip þetta var smíðað heima hjá Hjalta á Suður-Götum og
hlaut nafnið Farsæll.
Eins og fyrr segir, voru Friður og hann af svipaðri stærð, en
Farsæll þótti liprara skip í meðförum, sérstaklega bæði í setningi
og útróðri en mjög álíka gott sjóskip, og aflaskip reyndist hann
ckki síðra en Friður. Ekki liggur nú fyrir, hverjir voru í upphafi
meðeigendur Hjalta að Farsæl.
Geta má þess, að bæði þessi skip voru að sögn gamalla manna
nær eingöngu smíðuð úr rekavið.
Þegar Farsæll var fluttur frá Suður-Götum suður í Reynishöfn,
höfðu verið ísalög yfir öllu láglendi. Var það lengi í minnum haft,
hversu vel hefði gengið að setja hann alla þá leið og af mörgum
talið benda til þess, að þar væri happaskip til sjávar sett, en sú var
trú manna, að það væri ilisviti, ef framsetningur skipa gekk illa.
Ekki varð Hjalti margar vertíðir með Farsæl, en við honum tók
þá Einar sonur Hjalta en einnig fáar vertíðir. Þegar hann hætti,
tók Heiðmundur bróðir hans, sem lengi bjó á Suður-Götum, við
skipinu. Síðast var formaður á Farsæl Jón Jónsson bóndi í Reynis-
hólum. Var þá orðið erfitt sökum mannfæðar að halda úti þremur
áttæringum úr Reynishöfn. Sérstaklega hafði þá fækkað mönnum,
sem komu austan yfir Mýrdalssand til róðra í Reynishverfi, þar
sem útgerð í Vík hafði þá aukizt til muna og þar verið byggðar
nokkrar sjóbúðir. Góð sjávarskipti þóttu t Vík á þeim árum, og allt
athafnalíf hafði aukizt þar með vaxandi verzlun. Varð því að ráði
skömmu eftir síðustu aldamót, að selja Farsæl til Víkur sem upp-
skipunarbát. Þau urðu endalok hans þar, að hann fauk í suðvest-
anroki og brotnaði, svo ekki þótti borga sig að gera hann upp.
44
Goðasteinn